Heill hellingur alveg

Frekar langt síðan að ég bloggaði! Valborg og Gunni eru komin og farin til Íslands, þessir 12 dagar með þeim voru alveg yndislegir. Við skruppum öll 4 saman til Prag, það var ákveðið á fylleríi á föstudagskvöldi. Tókum bílaleigubíl daginn eftir, stoppuðum í Dresden og kíktum á jólamarkaðinn í gamla bænum þar, fallegur bær. Í Prag gistum við á indælu hosteli norðarlega í borginni. Á laugardagskveldi var djammað á fimm hæða skemmtistað, þ.e.a.s. strákarnir hengu á kjallarahæð allt kvöldið á meðan að við Valborg dönsuðum af okkur rassinn á öllum hæðunum, á sumum hæðum oftar en einu sinni. Daginn eftir þá sváfu Valborg og Gunni í bílaleigubílnum í bílastæða húsi við eina verslunarmiðstöð á meðan að við Óli skoðuðum okkur um í Prag fótgangandi. Við tvö fórum meðal annars á Museum of Communism
og skoðuðum gyðingahverfið, þ.e.a.s. nokkur samkunduhús gyðinga, kirkjugarð gyðinga frá um 1400 og minnisvarða, hús þar sem að mörg nöfn gyðinga sem voru myrtir voru skrifaðir á veggina til minningar. Í Helför Hitlers, þá ákvað hann somewhere along the way í útrýmingarplönum sínum á gyðingakynstofninum að hlífa nokkrum sýnagógum og öðrum gyðingahúsum til minningar um útdauðan kynstofn. En sem betur fer þá tókst honum ekki alveg ætlunarverk sitt. Þannig að þessum byggingum hafði verið hlíft heppilega, svo stuttu eftir andlát Hitlers þá var stofnað Gyðingasafnið í Prag. Stórmerkilegt og mjög áhugavert að mínu mati. Eftir langan dag þá fundum við Gunna og Valborgu í súrefnislausum bíl og drógum þau til að fá sér að borða e-ð áður en við lögðum af stað til Berlínar aftur.Valborg fékk mig til að enduruppgötva prjónaskap, hjálpaði hún mér m.a. að prjóna minn fyrsta sokk og hjálpaði mér að byrja á trefli sem ég er að prjóna núna á fullu. :D Núna þarf ég bara að læra að hekla, flétta sjálfa mig, læra gera fastar fléttur og kannski nokkra aðra hluti og þá verður gaman.
Já, ég er líka orðin tuttugu ára... Ótrúlegt en satt! :P Á afmælinu mínu bauð Óli mér út að borða á gríska veitingastaðnum í gömlu götunni hans og var maturinn alveg frábær eins og vanalega. :D Eitt kvöldið fórum við 4 saman á Kareoke bar sem er hérna í götunni okkar Óla! Ég hafði aldrei áður farið í Kareoke svo að ég var mjög spennt og varð ég ekki fyrir vonbrigðum, tótallí pró aðstaða þarna, við fengum sérherbergi með 3 sófum, stórum flatskjá og e-u kreisí kareoke tæki þar sem hin ýmsu lög mátti finna. Sjaldan skemmt mér jafnvel.
En af íbúðinni er þetta helst að frétta:
Við erum enn ekki með eldhús, erum hins vegar með samlokugrill, ristavél og ísskáp sem er búið að fúnkera ágætlega sem eldhúsaðstaða en það þýðir að ég er ekki búin að elda síðan í nóvember. Frekar ruglað.. :) Hefði viljað baka e-ð, en þegar að enginn ofn er til staðar þá er það frekar erfitt... :) Svo er ég staurblönk og hlakka til að komast heim til að þéna smá péning.
En í dag flýg ég til Íslands og verð á klakanum yfir jól, áramót og fyrstu 12 daga ársins 2009. Jibbíjeijeijei.
Ég ætla að halda smá afmælispartý á Íslandi. Ykkur er boðið!
Sjáumst á Íslandi!!!
Hildur


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim