fimmtudagur, október 23, 2008

Ég hef


ekki alltaf rétt fyrir mér, auðvitað ekki, ég hef aldrei haldið því fram einu sinni. Vil samt taka það fram. Ég tala stundum hærra heldur en ég ætla mér, eða beiti röddinni öðruvísi, ég er alin upp við fólk sem er hálfheyrnarlaust, sérstaklega þegar að það kemur að því að tala saman um e-ð sem er remotely upsetting. En já, við Óli erum að venjast því að búa saman og við erum að reyna standsetja íbúð upp á okkur eigin spýtur, það er frekar frústrerandi þar sem að hvorugt okkar hefur reynslu af þessum málum og erum því alls ekki sammála alltaf hvernig er best að fara að hlutunum. Það er bara þannig býst ég við. En í dag er ég búin að vera sparsla og slípa veggi, verk sem ætti að fara klárast en það lítur ekkert út fyrir að ætla að klárast fullkomlega. Eiginlega ekki hægt að búast við því af svona nýgræðlingum? En það væri frábært ef að það gerðist sem fyrst! Óli er í skólanum á hverjum degi, öfunda hann svolítið, þar hittir hann fólk að minnsta kosti, og á vini. Mig langar í vinina mína, en það virðast allir vera of uppteknir til að vera á MSN, Skype eða jafnvel Facebook. Kannski ég ætti að hætta að reyna og sjá hvernig það gengur, annars hugsa ég um að senda fólki bara póstkort mánaðarlega. Monthly events hljóta að vera skemmtilegir, þó að þeir geti verið leiðinlegir. Æj, blargh. Ég byrja í lýðháskólakúrsinum 3. nóvember. Þá ætti ég að geta eignast álíka þýskumálhaltavini og sjálfa mig. Þegar að ég er svona mállaus þá finnst mér ég bara vera hverfa e-ð út í buskann. Það er enginn gleðitilfinning. En ég er að reyna sporna gegn því með því vera að byrja í magadans og útihlaupi. Fór í magadans á miðvikudag, það var alveg merkilega gaman, þó svo að ég sé meira "frjálsa-aðferðin" dansari þá held ég að ég hafi bara gott af smá dansi, eigandi 2 ballerínur að systrum... Samhæfing handa og fóta var furðulega flókin svona til að byrja með. Meira af framförum í þeim málum síðar. Ég er svöng, kannski ég fái mér epli, því að það er eini maturinn á boðstólunum hérna í óstandsettu íbúðinni.
En allir sem lesa þetta, vona að þið hafið getað lesið þetta til enda, svona þegar að ég lít snöggt yfir þetta þá verð ég hálfringluð...

Saknaðarkveðjur frá Berlin

3 Ummæli:

Þann 12:15 f.h. , Blogger Halldóra Eldjárn sagði...

Þýskumálhelti er alveg stórhættulegt, svo þú skalt passa þig!
ahahahahahahah! Málhaltur magadansari!
Þú ert það magnaðasta sem ég hef heyrt um! Kisinn minn, ég sakna þín svo óendanlega! Enginn til að sofna yfir sjónvarpsþáttum með eða halda japönsk teknópartí fyrir framan tölvuna þína.... bara við tvær.... partí!

Ég vildi ég væri geðveikislega rík og fræg, þá myndi ég fljúga í einkaþotunni minni í íbúðina þína, smella fingrum og andinn í Aladdin myndi koma og klára að sparsla og mála og reisa veggi og eitthvað, meðan við förum að vera menningarleg í Berlín. Gott plan ekki satt? ;)

Ástarkveðjur, Dórormur

 
Þann 10:37 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ókei, ég kommentaði geðveikt langt og hressandi komment áðan...en blogger hatar mig svo það dó af einhverri ástæðu.

En ég hef það þá bara stutt:

Ég sit hér sveittur yfir anatómíu- og tópógrafíubækum og verð að segja að ég öfundi þig svolítið á því að vera að setja upp þína eigin íbúð. Ég bý enn í pínulitla herberginu sem mér var hennt í og það er alltaf allt í rúst þar sem það er varla pláss til að geta gengið snyrtilega um.

En gangi ykkur bara geggjað vel með íbúðina og skemmtu þér í magadansinum ;)

Auf Wiedersehen! (já, ég kíkti í orðabók, ég sökka í þýsku)

 
Þann 8:37 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Jæja, það lítur allavega ekki út fyrir að þú sért vinalaus :)

Hlakka til að sjá þig og já við erum búin að kaupa flugmiðana

 

Skrifa ummæli

<< Heim