Veraldarvefurinn og nettenging
Jamm og jú, ég er búin að búa hérna í 3 vikur og 1 dag í kvöld... Ég sver að mér finnst þetta vera meira eins og 3 mánuðir. I guess time doesn't fly like it used to. Vantar gamanið, gamanið fylgir vinunum. Finna meira gaman!Ég tók sunnudaginn var í að hringja frítt af Voipbuster í hina og þessa heimasíma, hjá vinum að sjálfsögðu, ekkert símaat neitt. :) En endilega commenta um mögulega símatíma ef fólk hefur áhuga! Og nei, ég er ekki með erótíska símaþjónustu. Ekki alveg svo ljúft, haha! Ég segi þetta því að á kvöldin eru heilu sjónvarpsstöðvarnar herteknar undir auglýsingar af konum að stynja símanúmerin sem fólk getur náð í þær í og fengið sína villtustu drauma uppfyllta gegn vægu gjaldi. Og svo eru hinir og þessir líkamshlutar blurraðir. Voða smekklegt. Hóst.
En ég fór í bókabúðina Hugendubel(já fáránlegt nafn ég veit!) En þeir eru með e-a svölustu plastpoka sem ég hef séð fyrir bókabúð, hvítir með texta á, svörtu gamaldags letri og rauðri skreytingu við suma stafi. Þarf eiginlega að fara setja inn fullt af myndum af álíka dóti. Góð hugmynd! En ég keypti Passwort Deutsch 5 skólabókina mína, fyrir B1 þýskunemendur. Skólinn byrjar eftir tæpa viku, hlakka mikið til þess og mér er að fara smá fram í þýskunni. Óli keypti Harry Potter un der Gefangene von Azkaban handa mér og ætti það að vera gott þýskt stígvélað spark í rassinn á heilanum á mér. Því að ég hef lesið hana á íslensku og ensku, ætti að hjálpa. Mig langar svo að fá Bluetooth í fartölvuna mína, hvernig geri ég það? Er með HP tölvu.. Anyone? :S
Af íbúðarmálum, þetta er að silast hægt og rólega í e-ð íbúðarástand. Óli lagaði vegginn sem við brutum niður með sementi og öðrum galdraefnum, svo að með smá málningu þá ætti ekki að sjást mikið að við brutum niður vegg. Ég er búin að sparsla allt sem ég sé að er sparslþurfi og núna er kominn tími á að slípa allt í drasl með slípivélinni sem Uwe allrahandargæi lánaði okkur. Uwe gamli kom á föstudagskvöldið og var með eiginkonuna sína og gamla elhúsplötu með vask í! Kom þessu öllu fyrir til bráðabirgða í eldhúsinu(nema eiginkonunni, hún stóð bara hjá. hohoho)
svo við Óli þyrftum ekki að saurga og skíta meira út fallega nýja baðvaskinn með sementi, sparsli og málningu. Hann er voða indæll hann Uwe, talar við mig þrátt fyrir málheltnina. Ví.
Ég fór í útihlaup á laugardaginn var í skóginum Grunewald, sem er ótrúlega stór skógur,(google-aði hann og fann að hann er 48.000 ferkílómetrar!) mér finnst reyndar allt stórt miðað við skógana á Íslandi. Og haustið er svo fallegt! Haustlitirnir á laufblöðunum sem eru að falla út um allt og framan í mann. Yndislegt og pínu truflandi... Hlaupaleiðbeinandinn sagði mér að það væri hægt að hlaupa allan daginn í Grunewald án þess að fara sömu leið tvisvar. Ég ætla ekki að fara ein að hlaupa þarna, það er víst. Ég er álíka ratvís inn í skógi og ungabarn í reifum. Það var hægt að velja um að hlaupa 6 eða 8 km, og eða 13-18 km. Ég ákvað að hlaupa 8 km, bara sjá hvort ég gæti það. Hef ekkert verið að æfa, seinasta hlaupa settið mitt var í sumar fyrir interrailið, sem sagt í ágúst e-n tímann. Það er langt. En mér til mikillar furðu þá gat ég labbað eftir það og get enn, er ekki alveg sliguð af harðsperrum, sem er jákvætt.
Magadans á morgun, hlakka til!
Ég er að uploada video-i á youtube með smá guided túr um íbúðina sem ég tók fyrir nokkrum vikum, ég opinbera slóðina þegar að þetta verður loks búið að uploadast.
Bis bald,
Hiltügh


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim