miðvikudagur, nóvember 26, 2008

Flutt inn í nýju íbúðina

Á sunnudaginn var fengum við Óli til liðs við okkur þau Nidal, Caro, Krz, René og Susi til að flytja dótið okkar úr Kreuzberg og til Charlottenburg. Óli leigði lítinn sendiferðabíl og í 2 ferðum þá náðum við að flytja mest allt dótið. Að launum fengu allir pizzur og bjór. Enn sem komið er þá erum við bara búin að setja saman rúmið, annars er ekki búið að taka upp úr kössum eða neitt. Fyrst þarf að klára leggja parketið á ganginum, svo þarf að setja lista með fram veggjunum, svo er hægt að fara setja saman hillurnar og þá er hægt að taka upp úr kössunum. Ætli það fari ekki að gerast bráðlega. Segjum á næstu 7 dögum gæti ástandið breyst. En ég er að verða frekar blönk, sem er ekki gott. Sé til hvað er hægt að gera í stöðunni.
Valborg og Gunni koma á mánudaginn! Get ekki beðið.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim