I'm back ! Ég er bak!
Jæja, fyrst að ég sit hérna við tölvuna í Berlín og er að skoða Facebook, þá get ég alveg eins bloggað, er það ekki?Við Óli skoðuðum íbúð í gær sem er á 10. hæð í góðu hverfi nálægt ánni Spree. Mjög flott íbúð í grunninn en það þarf samt mikið til að hún verði almennileg og íbúðarhæf. Þarf nefnilega að laga ýmislegt; mála, gólfleggja, nýjar raflagnir, nýjar flísar á baðið, eldhúsinnrétting, skipta um glugga og fleira... Svo, ég held að við skoðum fleiri en þessa.:D Er ekki alveg að sjá mig flís og gólfleggja... Gæti það samt alveg.. hmm :D
Málaskólinn gengur bara mjög vel á mánudaginn fer ég á næsta level, sem sagt B1, var á A2. Svo að ég ætti alveg að spjara mig bráðum hérna. Ég er ekki búin að vera hérna í viku enn, en það fer senn að líða að því.
Ég er einstaklega fúl út í veðrið hérna, þá var awesome veður þegar að ég kom og svona fram á miðvikudag.. Núna er búið að rigna og bara vera kinda kalt í veðrI. Sem sýgur gamla sokka. Ég pant fá gott veður núna í júní. Týpískt að það sé glampa sól þarna á klakanum. Gerðist amk í fyrra þegar að ég var hérna.
En ég er búin að vera fylgjast með EM í fótbolta og búin að hafa nokk gaman af. Ég held svona með eiginlega hverjum sem er, þar sem að Ísland er nú ekki með, því að við erum með frekar lélegt lið.. en samt ekkert slæmt svona miðað við hvað við erum fá og að úrvalið er þá kannski heldur knappt.. Nei nei, okei, sorry íslenska landslið, ætlaði ekki að móðga ykkur mikið. En við erum í heimsklassa í handbolta svo að ég ætla ekki að kvarta.
En ég held að það sé kominn tími á morgunmat. Vitiði hvað? Ég held ég bloggi jafnvel aftur í þessum mánuði. En ég legg áherslu á ég held. :D


2 Ummæli:
þegar þú skrifaðir þetta var 16° hiti og sól á klakanum skal ég segja þér!;) en gott að þú ert að njóta þín þarna. en hvað er málið með þig og að hafa gaman af fótbolta! passaðu þig bara að enda ekki eins og rósar afi með þessu áfram haldi!
hahaha:D
elska þig<3
humm.. uh... ég hérna... er í 19°hita í bara rétt norð-vestan við þig :D
Veit ekki með þetta að koma í heimsókn í nóvember vegna þess að við erum eiginlega bara ekki með skít af peningum og það er eiginlega heimskreppa og eitthvað fleira sem vinnur gegn því að lífið geti verið eins og það var.
p.s. klukkan fjögur í dag koma einhverjir ljósmyndarar hingað að taka myndir af okkur Gunnari fyrir Fréttablaðið og Moggann, það verður spes. Er að pæla hvernig ég eigi að geta gert mig sem furðulegasta, fara kannski bara í mín eigin föt? Það virkar pottþétt...
Gaman að sjá að þú ert allavega á lífi og að allt þetta "vera-með-Hildi-í-eitt-og-hálft-ár" var ekki bara til þess að fá þig frá fjölskyldunni og múra þig inn í vegg og kalla það eilífa list.
:)
Ég elska þig,
(af hverju er p.s.-ið svona ofarlega?)
Valborg (Gunnar elskar þig pottþétt líka og er ábyggilega eitthvað sammála því sem ég skrifaði, þó hann sitji við hliðina á mér og er bara í DS ætla ég samt að bara ganga út frá því að hann sé sammála áb þess að spyrja hann :) þetta verður ekki undirhökubroskall)
Skrifa ummæli
<< Heim