föstudagur, nóvember 07, 2008

Tvöfalt blogg

Á miðvikudaginn var skrifaði ég þetta blogg:
"Daginn. Gleði ríkir víðsvegar í heiminum í dag að Barack Obama hafi
verið kosinn, með yfirburðum, forseti Bandaríkjanna. Það gleður mig að
sjá fram á nýja tíma. Það er samt ekki allt bara undir honum komið,
hver einn og einasti þarf að vilja og vinna að breytingu.
Og þannig fá að sjá hvernig efnahagur Jarðarsamfélagsins gæti breyst,
til hins betra fyrir allan heiminn. Það er mikil þörf á breytingu,
þó svo að þeir sem vilja ekki horfast í augu við sannleikann. Ofneysla,
græðgi, fátækt, ofríkidæmi, hungur og stríð, hættuleg viðhorf
Fjárfestingafyrirtæki og stóriðjur víðs vegar um heiminn þurfa að skoða
sinn gang, og það þarf að útrýma bankaleynd!
Sviss, Guerney og aðrir álíka bankar sem gera fólki
og fyrirtækjum kleift að flytja háar fjárhæðir á milli landa og fela
peninga fyrir þeim sem í raun og veru þurfa þá. Það vantar að sameina lög í
öllum löndum um bankastarfsemi og fjárfestingar. Það þarf einhvern
veginn að breyta því að víðsvegar í Asíu og í Afríku. Í Indlandi og Kína
eru t.d. alltof margir að svelta, fyrirtæki frá Vestrænum löndum misnota
náttúruauðlindir og vinnuafl með jafnvel hótunum um að fara annað.
Ég veit ekki hvernig það á að fara að því að hemja græðgi viðskiptamanna
og dreifa jafnar auði. Hvar á að byrja? Að sjálfsögðu þyrftu Vesturlönd að taka
smá högg þegar að við hífum hina upp, þ.e.a.s. í lífsgæðum, þ.e.a.s.
að t.d. milljarðamæringar sjái að sér og selji snekkjurnar og fara sjálfir með
peninga og hjálpargögn á staðinn og dreifa jafnt. Ég er komin fram úr sjálfri
mér. Það þarf að leggja mikla vinnu og hugsa þetta út á alla kanta til að
sporna gegn þróuninni sem hefur verið undanfarna áratugi."

En núna sitjum við Óli á bar og erum að drekka smávegis, bjór og Daquiry. Guess who's got what. :)
En við vorum að koma úr bíó á Potsdamer Platz Cine Star, annað skiptið í vikunni sem við förum í bíó. Ég bara virðist ekki geta staðist saltað popp. En við sáum Quantum of Solace, nýju Bond. Hún var action and no talking. Ágætis tímasóun þ.e.a.s... Svo er hann Daniel Craig alltaf jafnsvalur. En ég hef ekkert verið í netsambandi þessa vikuna svo þetta blogg kemur alltaf seint. Þið hljótið að lifa það af.
En fyrsta vikan í lýðháskólanum er búin og ég er bara frekar sátt. Ég er að læra fallbeygja og fleira af viti og það ætti að límast inn bráðlega.
En ég læt kannski heyra í mér á morgun, hver veit.

Knúsles frá Deutschlandddd

1 Ummæli:

Þann 8:36 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ Hildur. Ég var að horfa á íbúðarvídjóið þitt. Það var mjög gaman að sjá þetta, frábær leikstjórn á þessu alveg hreint. Ég hef mjög gaman af svona myndum þar sem það er svona sögumaður sem segir manni allt í bakgrunninum, minnir mig á HIMYM. :) En án gríns, þetta er heljarinnar íbúð hjá ykkur, gaman að sjá þetta, það er greinilega nóg fyrir stafni hjá ykkur, leggja parket og fleira. Einn daginn væri ég til í að kíkja í heimsókn, kannski þegar efnahagurinn lagast aðeins. :) Það er lítið að frétta af mér svosem, er náttúrulega enn í skólanum. Styttist í lokin á honum samt, prófin byrja víst eftir 2-3 vikur. Líður svo fljótt... Ég var að muna eftir þessari bloggsíðu þinni, skemmti mér við að lesa nokkur gömul blogg frá þér, endilega haltu áfram að bloggast svo maður geti fylgst með þér og þínum ;) En hlakka til að heyra meira frá þér, gangi þér vel með allt saman, íbúðina, þýskuna, skólann og allt saman :) Heyrumst

 

Skrifa ummæli

<< Heim