þriðjudagur, október 21, 2008

18 stiga hiti úti í lok október...

er ekki alveg það sem ég þekki frá Íslandi svo að þetta er undarleg tilbreyting. En fréttir af mér og íbúðinni...
Baðið er hér um bil alveg að verða klárt. Allt er flísalagt, baðið er komið(vantar sturtuhaus), vaskur er kominn og klósett! LOKSINS! Við erum búin að komast afar vel af síðustu daga með því að drekka lítið af vökva og borða sama sem ekkert þegar að við erum hérna að vinna í íbúðinni. Þarf bara að pússa og mála inni á baði og setja speglaskáp fyrir ofan vaskinn og þá er hægt að lýsa þetta herbergi tilbúið. En svo máluðum við tölvuherbergið og stofuna hátt og lágt um daginn, í tvígang en samt eru veggirnir enn e-ð skrýtnir með e-um gulum rákum á. Svo því miður þá er Óli að tala um að setja e-a veggi yfir veggina og mála þá svo eða e-ð álíka tímafrekt. Einmitt það sem við þurfum, meira að gera! :P
Sem sagt enn óklárt... allt nema hluti af baðinu basically. Miðað við þessar framfarir síðan að ég kom þá erum við Óli búin að ákveða að framlengja leiguna á hinni íbúðinni svo að við deyjum ekki úr stressi og álagi við að klára þetta allt á innan við 1 viku og 3 dögum. Við erum því miður ekki that TV show sem ég man ekki hvað heitir sem byggir upp hús á 1 viku. Svo allar hendur sem geta komið til Þýskalands að stússast eru mjög velkomnar. Einnig sakna ég allra vina minna og fjölskyldunnar. Heyriði það ormarnir mínir?!
En góðar fréttir eru að ég skráði mig í magadans á miðvikudögum og skógarhlaup á laugardögum. Svo kannski e-ð gerist í því að ég kynnist fólki og fái hreyfingu í þessari viku.
Jæja, ég ætla að fara gera e-ð hérna í íbúðinni, ekki veitir af.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim