Allt að gerast!

Það er bókstaflega allt að gerast. Ég er búin að mála alla íbúðina hátt og lágt. Óli málaði e-a 3 veggi. Hans eru meira noticeable því að einn er rauður, annar gulur og sá síðasti blár! Afrakstur vinnunnar má sjá hér. Ég tók mig til í dag og þreif öll gólf hérna í íbúðinni, í tilefni þess að við erum búin að mála og ætlum að reyna byrja parketleggja á morgun. Ég stóð mig svo vel að ég skrópaði í skólanum og var fyrst núna að klára skúra allt eftir að hafa sópað allt í klessu, hent 3 svörtum ruslapokum að dagblöðum og fleiru. Einnig fór ég með ca 50 kg af drasli héðan af 5. hæð niður í bílskúr. Ekki hægt að segja að ég hafi verið löt í dag! Get ekki beðið eftir að sjá svipinn á Óla þegar hann sér hvað ég er búin að gera allt hreint og fínt! Hann sumsé var í skólanum í allan dag, fór í próf meira að segja. En núna er hann í badminton. Hann er alltaf voða upptekinn á mánudögum, greyið.
En ég held ég fari heim í sturtu, skipti á rúminu og sofni yfir Criminal Minds. (Þáttaröð sem ég var að uppgötva fyrir stuttu. Gott sjitt...)
Ýkt duglegar kveðjur frá Fiskalandi!
ps. Verið dugleg að kommenta, jafnvel þó það sé ekki nema til að segja hæ. I luvs your feedback!
pss. Já það var Sanint Martin's sem er haldinn hátíðlegur þann 11. nóvember, með því að labba um með litlar luktir með kertum innan í, syngja og fleira gaman. Á Bergmannstrasse eru meira og minna allar búðirnar með svona lukt eins og sést á myndinni utan á, misflottir þó, en skemmtilegu engu að síður.


4 Ummæli:
Hæ.
Greinilega allt á fullu hjá ykkur. Gaman að geta fylgst með og fengið nánast beinar lýsingar. En þú ættir að tjékka á annarri þáttaröð, Chuck, totally awesome :P Heyrumst
hahaha, ég kem sko ekki í heimsókn fyrr en framkvæmdunum er lokið! I has an allergy! ;)
Hlakka svo til í jólafríinu þegar þú hættir að vera þýskur fiskur og verður frosinn fiskur heima með mér! :D
Vá, þið eruð svo dugleg :D
Þetta lýtur bara svakalega kósí út hjá ykkur!
Hlakka til að hitta þig um jólin, hafðu það gammó!
Æðiselgt að allt gengur svona vel:) Þú er nú aldeilis dugleg, ég er sjálf að reyna að koma íbúðinni okkar Sigga í gott stand, gengur svona ágætlega:) Annars er ég bara að segja hæ;)
Skrifa ummæli
<< Heim