Fiskaland
Komið að smá bloggi. En góðar fréttir héðan úr Fiskalandi, eins og Tómas frændi kallar það. Við Óli erum að fara taka næstu daga með fútti því að við ætlum að flytja inn um næstu helgi. Óli er búinn að smíða og setja upp vegg úr gifsplötum, festar saman með viðarbútum og glerull að innanverðu til einangrunar. Talandi um handlaginn mann! Svo er búið að sparsla allt í klessu, helst er eftir að slípa nokkra veggi.Planið í dag er að klára grunna veggi og byrja að mála ómálaða veggi.
Allt málningarstúss á að vera búið fyrir sunnudaginn. Svo á að leggja gólfin!
Meira af því síðar... Svo þegar að við getum loks farið að flytja dót yfir í íbúðina
þá ættu málin að einfaldast, er það ekki? En mér gengur bara ágætlega í skólanum og fyrir viku eða svo byrjaði mexíkanskur gaur í tímunum og hann kynnti mig fyrir konunni sinn til að æfa hana í ensku og hún ætlar að rifja upp fyrir mér spænskuna. Ég ætla samt að reyna halda mér mest við ensku þegar að við tölum saman. Spænsku upprifjun í takt við þýsku námið gæti haft mjög svo ruglandi áhrif á heilabúið mitt. Nógu erfitt er að hugsa á íslensku, ensku og þýsku, að ekki bætist við spænska. Fjúff! Á mánudaginn var steig ég á vigtina og ákvað að byrja hreyfa mig reglulega,
í ca klukkutíma í senn, fór að hlaupa á mánudegi og þriðjudegi, og svo aftur núna í morgun, ætla að reyna hafa það þannig að ég hreyfi mig amk 5 daga vikunnar hér eftir. Sé til hvernig mér gengur með það. En það þýðir að ég þarf að hreyfa mig á morgun og hinn líka. Hmmm... jæja.
Á miðvikudögum er ég með frí í skólanum. Svo á þriðjudaginn var þá fór ég að djamma með Constanze og Nancy í Sophienclub. Það endaði ekkert sérlega vel þar sem að ég
varð aaaalltof full. Lá allan miðvikudaginn í hinni verstu þynnku. Klapp fyrir mér...
Það verður svo partý á laugardag til að fagna því að Robby er kominn heim frá Noregi. Ætla vera edrúúú. En frekari fréttir af mér í Fiskalandi síðar!


1 Ummæli:
klapp fyrir Hildi
Skrifa ummæli
<< Heim