fimmtudagur, desember 01, 2011

Sund!

Halló!
Já, fundurinn við yfirþjálfarann gekk vel, þó svo það hefði verið mjög stutt. Hann sagði að ég mætti byrja æfa strax með A-hóp, sem er besti hópurinn og ég mætti mæta hvenær sem mér hentaði. Ég reyndi að segja honum að ég væri engan veginn á sama leveli og þessir krakkar en hann lét það sem vind um eyru þjóta og sagði að þetta væri enga stund að koma aftur. Ég hef samt ekkert synt af viti, þ.e.a.s. markvisst æfingasund síðan 2005, þannig að ég veit ekki alveg hvaða ranghugmyndir hann er með hvað varðar líkamlegt ástand.
En hvað um það, ég ætla bara láta vaða og prófa mæta á æfingar. Í versta falli hrökklast ég bara upp úr og fer í e-n barnahópinn þar sem krakkarnir eru 11-15 ára.
Þessir krakkar eru að synda 5-6 km á æfingu en ég hef mest verið að taka 2-3 km á góðum dögum.
Þetta verður mjög áhugavert. Það eru morgunæfingar frá 5:30-7:15 alla virka morgna og ég held að ég gæti prófað að byrja mæta á þær æfingar, ég held að þær æfingar séu styttri. En ég veit ekki hversu auðvelt það verður að vakna í frosti og myrkri til að sprikla í lauginni.
Ég salta þetta bara aðeins, það er nú mannerfðafræðipróf í fyrramálið og svo á ég afmæli um helgina. 

Þar til næst!
Hildur

miðvikudagur, nóvember 30, 2011

Já, seinasti dagurinn í nóvember

Herró.

Seinasti dagurinn í nóvember er í dag og fullt af góðum vinum eiga afmæli í dag. Til hamingju þið (þó svo enginn lesi þetta blessaða blogg).
Glæstar vonir um að æfa sund ein og upp á eigin spýtur entist ekki lengi. Hlut úr sumari. Svo byrjaði dansinn aftur í haust og ég kenndi 1x í viku og komst eiginlega aldrei á danskvöld. Fruntalega mikið að gera í skólanum. Nú er prófatíðin byrjuð og fyrsta prófið er núna á föstudaginn, mannerfðafræði. Það verður spennandi að sjá hvernig það fer.
Svo klára ég prófin 15. desember og þá munu hlutirnir sko gerast!
Ég hafði samband við yfirþjálfarann hjá KR í gær og tjáði honum það að ég vildi byrja aftur að æfa sund! Ég á fund með honum núna eftir 30 mínútur! Ég er búin að vera drepast úr spenningi, er allavegana með jákvæðan spennuhnút í maganum!

Ég kannski kem með fleiri update seinna,
svona fyrir ykkur Hafsteinn og Bragi, ef þið eruð þarna :) ;)

MBK,
Hildur!

laugardagur, ágúst 13, 2011

Æfingablogg #3

Úps!
Þarna fyrir og kringum verslunarmannahelgi er ég búin að vera slöpp og lasin og ekkert æft mig. Svo fór ég í endajaxlatöku í þessari viku. Brilliant excuses not to do shit!
En planið er að hreyfa sig núna í dag, laugardag og svo er planið að fara á hjóli í vinnuna alla næstu viku og synda eftir vinnu amk annan hvern dag.

Update later!

mánudagur, júlí 18, 2011

Æfingablogg #2

Sæl veriði aftur! Fyrsta vikan í sund- og hreyfingarátaki gekk vel
mán. Sund eftir vinnu í laugardalinn, hitti Sigrúnu, Emma, Maju og Tómas. Ég synti æfingu nr. 5 af síðunni góðu:
Upphitun -frjáls aðferð
150 m sund
150 m fætur
150 m hendur

10x50 m skrið stað á 1 mín

Bringusund
100m fætur
4x50m hendur
100m sund
4x50m sund

Fjórsund 4x125, byrja á 50 flug, svo 50 bak osfrv.

Niðursund 150m með frjálsri aðferð


synt í heildina 2,2 km
Fór annars líka í bíó með G á HP seinustu myndina.

þri. sundferð í Neslaugina með Guðmundi eftir vinnu.
Æfingin sem ég ætla að taka er nr 4 af sundæfingasíðunni góðu:
Upphitun: Drill 200 m

Skriðsund
Swim Free 400
Swim Favorite stroke 4x100
Kick Free 300
Swim 2nd favorite stroke 4x75
Pull Free 200
Swim 3rd favorite 4x50
Swim Free 100
Swim least liked stroke 4x25
(:20 rests)

Fjórsund 100m

Niðursund 100 m

Alls 2,4 km

Sun. Æfing 7 af sundæfingasíðunni

fimmtudagur, júlí 14, 2011

Æfingablogg #1

Sæl aftur.
Ég giska á að það séu allir löngu búnir að gleyma þessari síðu. Það er allt í lagi. En ég ætla hér með að byrja halda æfinga- og hreyfingarblogg. Sú hreyfing sem ég hef stundað hvað mest reglulega síðan byrjun árs 2010 er dans, nánar tiltekið swing dansinn lindy hop. Það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert! En núna eru sumarfrí í dansinum og ég hef bara lítið sem ekkert dansað síðan í maí-júní af viti. Mér finnst ég vera tútna út af spiki, leti og sleni. Ég á kort í World Class, en það er meira notað til að fara í sundlaugarnar í Reyjavík heldur en í miðstöðina sjálfa. Ég ætla hætta þessari ræktar sjálfsblekkingu, ég fíla ekki að mæta í gymmið, ég þarf að vera gera e-ð skemmtilegt og komast í form á meðan ég geri e-ð skemmtilegt.
Ég er byrjuð að leita aftur í forna frægð og tók sunddrottninguna á þetta og skellti mér á morgunæfingu með honum Guðmundi á miðvikudaginn var.

þessi vika
mán.hjólað til og frá vinnu
þri.hjólað til og frá vinnu
mið. morgunsund 1,4 km + dans um kvöldið
Við vorum mætt út í laug kl 6:30 og syntum við bæði.
Ég tók
500 m upphitun
2x400 m fjórsund
sem er í heildina 1,3 km

Ekki gafst tími í meira þetta skiptið en stefnan er tekin á æfingu aftur í fyrramálið.

fim. sund?
fös.sund e. vinnu með Höbbu.
Synti:
Upphitun - 200m frjálst

Skriðsund Pýramidi

2x50 á :60
2x100 á 2:0
1x100 á 3:0
1x200 á 4:0
1x100 á 3:0
2x100 á 2:0
2x50 á :60

sem er þá í heildina 1,2 km


lau. Herbalifedagur, sund með Möggu minni og kenna rútínu í lindy hop, party
með Möggu synti ég:
Workout #6
Upphitun 300 m frjálst

Skriðsund pýramidi
2x50 hvíla í 5 sek
2x100 hvíla í 10 sek
2x150 hvíla í 15 sek
1x200 hvíla í 20 sek
2x150 hvíla í 15 sek
2x100 hvíla í 10 sek
2x50 hvíla í 5 sek

Baksund - fætur yfir, sund til baka, 200 m

Fjórsund 100 m

Niðursund 100 m
Sem er í heildina 2000 m


sun. afmæli og spil

http://ruthkazez.com/50swimworkouts.html

Alls synt í þessari viku 4,7 km.

mánudagur, janúar 04, 2010

Blogga?


Ég hef ekki bloggað síðan í apríl í fyrra... Það er fokk ass langur tími.
Kannski ég geti farið yfir mánuðina stutt?

Maí
*Fór til Íslands að vinna á tannlæknastofunni hans pabba

Júní
*Líkamsrækt með Möggu og vinna

Júlí
*Útihlaup, ræktin og vinna

Ágúst
*Þjóðhátíð í Eyjum með fjölskyldunni og einnig með vinum á borð við Valborgu, Gunnar, Alla, Erling, Bjarna og Daða.
*Reykjavíkur Maraþon á menningarnótt með henni Möggu, hlupum 10 km, stefnum á hálfmaraþon eða maraþon næst.
*Byrjaði í HÍ

September
*Læra
*Óhóflega mikið djamm og margar Vísindaferðir

Október
*Októberfest Háskóla Íslands
*Byrja í Kettlebells.
*Læra?
*Meira djamm, þ.á.m. Fáránleikarnir hjá Haxa og Fjallinu, dressaði mig upp sem Zombie tennisleikari og var fjári sannfærandi :P

Nóvember
*Gizmo kisinn minn greindur með CRF, eða króníska nýrnabilun, greyið orðið þvengmjótt og laslegur að sjá. Settur á sérstakt fæði sem átti að halda honum hressum.
*Þennan mánuðinn þurfti ég að einbeita mér og byrja að læra fyrir alvöru því að prófin voru að fara skella á
*Fór í verklegt próf í vefjafræði og fékk 9,5. Nokk sátt með það.

Desember
Skiljanlega man ég best eftir þessum mánuði þar sem hann var að klárast fyrir skemmstu.
*Ég átti afmæli, góðir vinir komu og fögnuðu með mér með spilerí og Jóla-Kalda
*Læra fyrir grasafræði verklega og skriflega, frumulíffræði og efnafræði
*Tók próf í viðkomandi fögum, náði öllu!
*Gizmo fór í algera nýrnabilun og þurftum við að kveðja þetta yndi eftir 9 ára samleið. :(
*Endurheimti hann Óla minn frá Þýskalandi á próflokadjamminu mínu, hefði varla getað endað prófin betur.
*Kolbjörg eignaðist 5 litla kettlinga! Jólakettlingar!
*Jólastússi var haldið í lágmarki í ár, gaf einstaklega fáar gjafir sökum fátæktar.
*Ég reyndi að vera sem duglegust og mæta á sem flestar kettlebells æfingar og var því öll jólin með hrikalegar harðsperrur.
*Jólin voru þó yndisleg og fékk ég góðar gjafir, æðislegan mat og tók því mjög rólega með honum Óla mínum.
* Á Annan í jólum var þó djammað heilan helling og mikið fjör í fólki.
*Á gamlársdag mætti ég á síðustu æfingu ársins sem var engin smá æfing, 12x í gegn 100 sipp, 10 burpees og 5 upphífingar. Gat varla staðið í lappirnar og fór inn í nýja árið með vænar harðsperrur. Svo um kvöldið kom fríður hópur fólks til mín að spila og drekka. Góður endir á annars misgóðu ári.

Kannski ég bloggi aftur seinna.

Takk fyrir það gamla. :)

þriðjudagur, apríl 14, 2009

Nei sko, páskarnir búnir! Vorið er komið!


Páskarnir mínir voru með öðru sniði heldur en vanalega. Ég vaknaði og faldi sjálf páskaegg, í staðinn fyrir að það væri bara falið fyrir mér. Mér fannst mjög skrýtið að vera ekki á Íslandi með fjölskyldunni yfir páskana. Það voru einhvern veginn ekki almennilegir páskar. Þó svo að nokkurn veginn allt hafi verið lokað hérna í Berlín, eins og er svo oft á sunnudögum, þá voru varla páskar. Samt awesome að borða íslenskt páskaegg.
Apríl mánuður er búinn að einkennast af sólríkum, hlýjum dögum. Fór m.a. í minigolf, óteljandi lautarferðir, frisbee og boltaleiki. Seinustu 2 daga er ég búin að vera mikið úti í sólinni og er núna smá sólbrunnin og með pínu hausverk.
Annað í fréttum er að ég er búin að vera geðveikt dugleg að mæta í ræktina og borða hollan mat. Takmarkið er að verða 63 kg í júní og lítur allt út fyrir að það ætli að takast hjá mér. Annað í fréttum er að við erum búin að velja allt fyrir eldhúsið, bókstaflega allt. Og Uwe verktakinn okkar sagði að hann kæmi í lok næstu viku, s.s. 23. eða 24. apríl! Get ekki beðið mikið lengur eftir að fá eldhús. Meina sure, ég borða mikið af grænmeti, ávöxtum, hrísgrjónum og brauði. En almennilegur kjötbiti eða almennilegur réttur væri kærkominn tilbreyting fyrir matargatið Hildi. Og hvað þá hann Óla greyið, síðan ég breytti um lífsstíl þá borðar greyið varla :P
En í gær, fyrsta skipti í lengri tíma, þá fékk ég grillað kjöt. Það var upplifun, en þar áður gleymdi ég að stimpla miðann minn í U-bahn.
Ég var sem sagt með miða og óeinkennisklæddir miðatjékkunar menn komu og sáu að ég var ekki með stimplaðan miða. Ég og Pummi reyndum að tala þá út úr því að gera mál úr þessu og leyfa mér bara að stimpla miðann á næstu stöð, var bara búin að fara eina stöð með lestinni, en hann tók það ekki í mál. Ég átti að fylla út upplýsingar svo að hægt væri að senda mér e-ð bréf, en ég var ekki með nein persónuskilríki, ég er ekki skráð hjá ráðhúsi, þá vildi hann meina að það þyrfti bara að fara til lögreglunnar ef ég borgaði ekki 40 evrur á staðnum. Pummi var gáttuð á hvað hann var dónalegur og vildi ekki líta fram hjá þessu. Svo að ég borgaði á staðnum aleiguna mína. Frekar súrt. Mér fyndist þetta annað mál ef að ég hefði yfirhöfuð ekki keypt mér miða... þá væri ég bara plainly að svindla. Fokking bull. Núna á ég uþb. 5 evrur. Jei. Fátækt!
Ég held ég fari bara í ræktina núna að reyna hlaupa frá vandamálunum mínum á hlaupabrettinu.
Ble

þriðjudagur, mars 31, 2009

Æðislega frábær endir á góðum mánuði!

Valborg og Valey komu, sáu og sigruðu hjarta mitt hérna seinustu helgi. Aldrei var dauður punktur!!

-Stelpurnar komu á föstudagskveldi, múraðar af litlum skotflöskum og lítilli Fresita flösku. Drykkum þeirra skál og tjilluðum það sem eftir lifði kvölds.
-Daginn eftir, á afmæli Valborgar,fórum við þrjár að versla og fannst loks afmælisgjöf handa Valborgu :D einnig voru keyptir tveir hálfs kílóa ullarhnyklar til að byrja prjóna úr! Við Valey vorum drulluþreyttar eftir labbið en Valborg var með e-ð afmælisadrenalín í fótunum sínum og gat haldið ótrauð áfram.
-Pöntuðum borð fyrir afmæliskvöldverð á leiðinni heim
-Eftir verslunarferð fóru stelpurnar að lita á sér hárið og ég fór í ræktina að hlaupa. Þær drukku víst heila hvítvínsflösku á meðan, það hafði engin áhrif á hárniðurstöðurnar!
-Við fjögur fórum út að borða á Mythos, gríska veitingastaðnum. Átum okkur flest öll pakksödd.
-Eftir mat var haldið heim, drukkið, mátað nýju fötin, Valborg setti á sig makeup og svo var haldið út á lífið!
-Á Matrix club var dansað og var slagorð kvöldsins: "IT'S MY BIRFDAY!"
Valborg fékk margan frían drykkinn þetta kvöldið. M.a. var dansað upp á borðum (ekki við, heldur eldheitar fáklæddar dansstúlkur), dansað í búrum, dansað við súlu og nokkurn veginn hvar sem er inni á klúbbnum.
-Vegna ölvunar, þreytu og bólgins fótar þá tókum við Taxa heim.

-Sunnudagur fór í þynnku, bólgin fót og veikindi. Ekkert af þessu átti þó við mig þar sem að ég var spræk. Við Valey fórum í leiðangur að finna Stól Satans. Sem við fundum svo ekki en við tókum Pergamon safnið á túrbó hraða, allt pleisið á 20 mínútum.
-Um kvöldið þá buðu "Svíarnir", kanadagæinn Steven og rúmenskapæjan Malina okkur í matarboð ásamt fleirum kanadamönnum, rúmenum og já jafnvel einum Kasakstana. Multi kulti kvöld.
-Fengum bakað kál með kjöti og grjónum inni í, gúlash súpu og kartöflu kjöt e-ð. Voða rúmenskt en ýkt gott.
-Þegar heim var komið fórum við Valborg að horfa á "A Tale of Two Sisters" suður-kóreska spennu-sálfræði-hrollvekju. Horfðum á hana með engu hljóði á pörtum, því það gerði upplifunina bærilegri. Prjónuðum líka. Ýkt kósí.
-Á mánudeginum var Valey orðin fárveik og þurfti að húka heima allan daginn.
-Við Valborg fórum hins vegar í smá mission en enduðum á að kaupa bara Bikiní á hana... Við borðuðum á Pizza Hut á Kudamm og ákváðum svo að kaupa Döner Kebab handa henni veiku Valeyju.
-Gladdi það hana mikið :D En stuttu síðar þurftu stúlkurnar að fara út á flugvöll.
-Óli lánaði Valeyju trefilinn sem ég prjónaði á hann en því miður tók hún hann óvart með til Íslands.

Ótrúlega var gaman að fá þær í heimsókn!! Hlakka til að fá þær aftur hingað!








mánudagur, mars 16, 2009

Pestó er bestó, líka í kvöldmatinn



Þetta er búið að vera heví góð vika. Fékk hvorki færri né fleiri en 30 örbylgjupopppoka og 2 ostapopppoka. Er að reyna að passa mig að poppa ekki alla í einu og fylla svefnherbergið af poppi og éta mig í gegnum mergðina, að rúminu og leggjast svo út af og springa. En nei, ég held að allt sé best í hófi. Hömm.
En það var geðveikt gaman að fá Bryndísi og Óskar. Kvöldið eftir að þau komu var okkur öllum boðið í Raclett til Marcel. Við 4 og Torti og Rene, keyptum í matinn og fórum svo heim og átum ásamt gestgjafanum Marcel, nautakjöt, ost, pulsubita og fleira góðgæti af heitum steinunum og var þetta dýrindismáltíð!!
Bryndís var í pínu tilraunastarfsemi með þýskt áfengi og prófaði hina ýmsu tegundir af bjór og eða gosbjór. Næstu daga þá var kíkt í smá verslunarferðir á Wilmersdorfer strasse sem verslunargöngugata í 5 mínútna göngufjarlægð frá húsinu mínu.
Fórum á Hookah barinn Best Time Café og skemmtum okkur heima við yfir Blow eitt kvöldið. Rosalega er gaman að hafa gesti. Ég þakka þeim kærlega fyrir komuna og vona að þau hafi skemmt sér jafn vel og ég.
Já, Óli kom líka með 2 stóra pakka af Cheeriosi. Mér til ótamdrar gleði. Cheerios er bestast. Bestasti þynnkumatur sem ég veit um. ANNAÐ: Lag sem vekur einstaklega mikið kæti þessa dagana er Röyksopp - Happy Up Here! I'm ready for it...! :D Gleði I say, gleði.
Þessi vika er ætluð í aðlögun að vakna 8 á morgnana til að mæta í ræktina og taka á því. 2 vikur er liðnar síðan að ég ákvað að breyta um lífstíl. Hefur ekki gengið fullkomlega hingað til, en ég þarf að sparka aðeins í rassinn á mér hvað varðar hreyfingu. :D
Ég hlakka líka geðveikt til föstudagsins 27. mars!!! Þá fæ ég aftur gesti... Nánar um það síðar. Ætla fara taka smá til.

Ást!

H

sunnudagur, mars 08, 2009

Á morgun fæ ég gesti!


Á morgun fæ ég gesti indeed! Ekki aðeins kemur Óli heim, heldur þá koma Bryndís og Óskar um miðnætti í heimsókn á morgun! Það þykir mér tíðindi og ég hlakka mikið til.
Er alveg að drepast úr stolti hvað það er hreint og fínt hérna heima. :D

Í gærkvöldi þá voru Silja og Torti hérna hjá mér. Kvöldið byrjaði á því að við tvær fórum út að borða, komum svo heim og fórum í Superbad-drykkjuleik, s.s. horfðum á myndina og drukkum í hvert skipti sem áfengi var nefnt, þ.e.a.s. hvaða orð sem er yfir áfengi; booze, alcohol, drinks, all that jazz. Svo bættum við reyndar orðinu PARTY þarna inn í. Við vorum að drekka Dooley's og ódýrt hvítvín. Svo kom Torti með kassa af bjór, svo að bjór fór að blandast inn í málin. E-s staðar á milli drykkjuleikja, þá ákvað ég að fara drekka bara vatn. Sé ekki eftir því, er ekki neitt þunn. Silja fór heldur verr út úr þessu og var þunn hérna í morgun. Silja og Torti gistu sem sagt því að klukkan var orðin heldur of mikið þegar að ég var byrjuð að dotta upp í sófa.
Í morgun þá vöknuðum við alltof snemma og fórum á Leibniz Café að borða morgunmat, reyndar bara tvær vegna þess að Torti var e-ð sybbinn. Fengum ljúffengan franskan morgunverð með baguette, croissants, harðsoðnu eggi, camerbert, mozzarella og ferskum ávöxtum. Heeeví næs. Nom. Verð reyndar svöng af því að lesa þetta hjá mér. En já, það sem eftir lifir dags þá ætla ég að
*fara í ræktina
*þvo fötin mín
*vaska upp
*læra heima
*Borða það eina sem ég á eftir í ísskápnum... s.s. Brokkolí, tómat og rauða papriku.

og svo taka því rólega uppi í sófa og horfa á Fraiser. Get ekki beðið eftir morgundeginum.

Heyruuumst

sunnudagur, mars 01, 2009

All by myself


Dýrið er aleitt. Óli fór á föstudaginn var til Íslands, ég sat ekki ein og grét, ég fór að heimsækja Birnu, Au-Pair sem þekkir hana Silju(önnur Au-Pair sem ég hitti í lestinni fyrir tilviljun), þar fékk ég osta og hvítvín. Fórum í drykkjuleik þar sem að reglan var að taka dverginn af glasinu, drekka, setja hann svo aftur á glasið. Furðulega erfitt að muna :P Sem urðum við allar svo þreyttar að við gistum saman inni í stofunni. Kósýkvöld. Svo í gær þá bauð Susi mér í þríréttaðan kvöldverð: girnileg tómatsúpa, spaghetti með rjóma og spínati, svo stracciatella ís með súkkulaðikökumylsnum og ávöxtum. Freeekar ljúft. Torti var þarna líka og við átum okkur pakksödd, drukkum og svo gistum við Susi saman. Og núna í morgun fengum við okkur ljúffengan brunch! Lítil heit brötchen með salami, skinku, smjöri, marmeladi og svo ferskir ávextir, hrærð egg með skinkubitum og kryddi, te og appelsínusafi!!! Ég bara hef ekki borðað svona góðan morgunmat í lengri tíma! Borða vanalega varla morgunmat. Æðislegt alveg. Fékk að taka með mér afganga! ví. En já, varðandi að vera ein hérna. So far hef ég ekki sofið ein í rúminu okkar Óla, en það verður örugglega pínu einmanalegt. Öfunda hann líka að vera á Íslandi! Ég vil vera á Íslandi líka. Hitta vinina, fjölskylduna... sniff! En já, ég er í miðju Fraiser maraþoni þessa dagana, ég er að skemmta mér konunglega! :D
Knús frá Fiskalandi

þriðjudagur, febrúar 17, 2009

Mikið fjör mikið gaman mikið að gera

Jæja, mér hafa borist athugasemdir um að ég ætti að blogga. Svo ég geri það auðvitað :)
Það er meira en nóg í gangi hjá mér þessa dagana, búið að vera slatti að gera fyrir þessa viku þar sem þetta er seinasta vikan mín í báðum kúrsunum. Svo milli þess sem að ég er búin að vera læra er ég búin að horfa á Eureka og spila Tetris villt og galið. Tók mig til í dag eftir skóla og tók vel til hérna heima. Ryksugaði allt, þreif gluggana, þreif allar flísarnar inni á baði, þreif klósettið og vaskinn líka. Þurrkaði af, braut saman þvott og gekk frá honum. Toppaði daginn með því að fara í ræktina og hlaupa 5 km. Geggjað dugleg. Enginn skóli á morgun, það þýðir að ég get drifið mig að gera hluti sem þarf að gera. En...
Hápunktur febrúar hingað til er heimsókn Einar Þórs og bróður hans Andra :D Við áttum góðar stundir saman, meðal annars þá fórum við út að borða á veitingastað sem er almyrkur og allir þjónarnir eru blindir. Fyrst velur maður matseðil áður en maður fer inn á sjálfan veitingastaðinn. Þrennt er um að velja, nautakjöt, fuglakjöt eða grænmeti, ekkert nánar út í það farið. Blindur þjónn kemur og leiðir mann inn í myrkan veitingastaðinn. Svo sátum við saman í myrkrinu, þreifandi okkur áfram eftir glösunum, diskunum, hnífapörunum og að sjálfsögðu matnum, reynandi að giska hvað maður er að borða í rauninni. Alveg ótrúleg upplifun, verandi staurblindur, alveg eins og þjónarnir...
En ekki var verra að Einar kom með 21 poka af örbylgjupoppi sem kláruðust á innan við viku. Já, ég er sjúk... fékk samt smá hjálp frá Óla og nokkrum öðrum aðilum en ég er samt sjúk í popp og það er alveg rugl ruglað.
Svo tók ég e-ð ömurlegt veikindatímabil í lok janúar til miðs febrúars og er ég að ná mér, held ég. Svo ég tók aðeins og langa pásu frá ræktinni og bætti strax á mig þessu 2-3 kg sem ég var búin að hlaupa af mér. Args...

Það sem er á lista yfir að gera í þessari viku:
*Fara í Bauhaus og panta flísar
*Fara upp í FU og tala við háskólaupplýsingadæmið um hvað ég ætti að gera varðandi þýskuprófið TestDaF eða DSH.
*Fara meira í ræktina og vera fitty bom bom en ekki fatty bom bom

Mér dettur ekkert fleira í hug annað en að fara í skólann og læra.
Ég er búin að skrá mig í áframhaldandi þýskunámskeið og það námskeið byrjar 2. mars, er mjög stolt af mér hvað það varðar, ég tók próf hjá kennaranum mínum og hún var mjög ánægð með útkomuna og gat viðurkennt að ég get haldið áfram, þrátt fyrir að hafa lært þýsku í svona stuttan tíma. KABLAMM! :D

Jæja, Valborg, sátt við mig? :D :*

Kossar og knús frá snævi þöktu Þýskalandi

laugardagur, janúar 31, 2009

Klukk

Hún Signý Kólumbíufari klukkaði mig í litlum bloggleik, hér eru svörin mín:

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
-Gras slátrari
-Aðstoðarmanneskja tannlæknis
-Dominos Pizza starfsmaður
-Afgreiðsla á Konditori Copenhagen

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
-101 Reykjavík
-Benjamín Dúfa
-Englar Alheimsins
-Djöflaeyjan

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
-Tómasarhagi 39
-Hofsvallagata 58
-Schenkendorfstrasse
-Leinbizstrasse

Einn staður sem ég myndi aldrei búa á:
-Holræsi

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
-Rijeka, Króatíu
-Garda vatn, Ítalíu
-Prag, Tékklandi
-Bled, Slóvenía

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
-Chuck
-Criminal Minds
-How I met your Mother
-House

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
-Facebook
-google.com
-www.icanhascheesburger.com
-http://rekkjusvin.blogspot.com

7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
-Popp, saltað
-Sætukartöflurnar sem Sigrún systir býr til
-Flestur ítalskur matur a la Mama
-ávextir og paprikur

8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
-Flestar Harry Potter
-Hitchhiker's Guide to the Galaxy
-Selurinn Snorri
-Hobbitinn

9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
-Að kafa við Great Barrier Reef í Ástralíu
-Í suður Ameríku að skoða Macchu Picchu
-Á Íslandi með fjölskyldu og vinum
-Í Egyptalandi að skoða Píramídana

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
-Dóra
-Hafsteinn
-Valborg
-Gunni

Múahahahaha

laugardagur, janúar 24, 2009

Komin til og farin frá Íslandi og meira að segja komin aftur til Berlínar.



Það var æði að vera á Íslandi í 4 vikur. Hitta fjölskylduna, vinina og alla hina. Já og það var jafnvel gaman að hitta Gizmo. Hátíðirnar voru ágætar, öll fjölskyldan kom saman og þó að amma sé svolítið elliær, þá var hún yndisleg og skemmtileg. Tómasi litla frænda fannst svo gaman að dansa í kringum jólatréð, frekar krúttlegt. Ég þekki enga fjölskyldu sem dansar í kringum jólatréð eins og mín fjölskylda. En bæði mamma og pabbi eru svoddan jólabörn að þau vilja halda í vissar hefðir... Hehe.
En jólagjöfin í ár var grái trefillinn sem ég prjónaði handa Óla. Mikil vinna lögð í þann grip.
Ég vann eins og bavíani allan tímann sem ég var á landinu, svo að ég ætti að geta lifað af næstu mánuði hérna í Þýskalandi, bara passa mig á að kaupa ekkert. Ekkert lúxus dót eins og áfengi, bíómiða og eða föt. Obbobobb. Alls ekki popp heldur, það er sko lúzusvarningur hér og erfitt að finnna.
Þýskunámið skotgengur og ég segi það vegna þess að ég er núna í tveimur þýskukúrsum, bæði B1+ og B 2.1, sem sagt 2 mismunandi level en mér gengur vel að taka þátt í báðum tímunum, annar er fyrir hádegi og hinn eftir hádegi. Svo á kvöldin læri ég heima og fer í ræktina. Ég keypti líkamsræktarkort í Kvenna líkamsræktarstöðinni MY SPIRIT sem er í 4 mínútna göngufjarlægð frá húsinu mínu. Ekki slæmt það. Engar afsakanir til að fara ekki að hreyfa mig.
Reyndar er ég búin að mæta verr núna þar sem ég er með blöðrubólgu, stingir í nýrunum og alltof tíð þvaglát eru ekki góðir hvatar fyrir mann til að fara svitna og púla. Er að taka inn e-r jurtalyf því að mér gengur lítið að fá tíma hjá lækni, hérna eru ekki neinar heilsugæslur... Stupid system. Ætla að gefa þessum jurtum séns yfir helgina og svo er það læknir ef mér er ekki batnað.
Planið í dag er að versla í matinn, læra heima, þvo nokkrar þvottavélar og svo djamma með stelpunum. Úje!