Flutt til Berlínar
Jæja, ég ætla að endurlífga bloggið, þar sem að ég frekar langt frá öllum mínum nánustu, nema honum Óla, ég bý víst með honum núna :D þá finnst mér tilefni til að vera með smá innskot í líf mitt hérna úr stórborginni.Mér líður bara nokk vel. Það má bæta úr nokkrum hlutum, þetta vinaleysi sem ég hrjáist af, ég sakna ykkar allra svo mikið og nýir vinir eru ekki beint á hverju strái. En það kemur víst allt af sjálfu sér segir fólk. Vona bara að fólk heimsæki mig e-n tímann, skítt með evruna, fólk getur komist ódýrt af hérna úti. Frí gisting og læti.... :D ;)
Ég held ég þurfi að fara æfa e-a íþrótt og það sem fyrst! Það mundi bæta úr 2 vandamálum, það að ég er ekki í góðu formi og að ég á enga vini, myndi eflaust auðvelda þetta að kynnast fólki um helming. Svo ég held það sé verkefni sem leysa þarf fyrir helgina. Skrá mig í e-s konar hreyfingu. Er búin að skrá mig í Lýðháskóla þýsku kúrs, en hann byrjar ekki fyrr en 3. nóvember svo ég geri ekki mikið í skólamálum þangað til.
En íbúðarmálin okkar Óla standa svona
Búið að gera:
1. Sparsla flest alla veggi og slípa
Á eftir að gera:
1. Mála
2. Gólfleggja allt
3. Flísaleggja baðið
4. Setja upp klósett, vask og bað
5. Finna eldhúsinnréttingu og setja hana upp
6. Brjóta niður einn vegg til að búa til skáp
7. Kaupa nýtt eldhúsborð og stóla
8. Kaupa skrifborð
9. Kaupa tölvuborð!
10. Búa til fataskáp
Og eflaust margt fleira.. Sumsé mikið ógert, en helst á dagskrá er að byrja mála, þá ætti að fara vera hægt að parketleggja, þá ætti að vera hægt að flytja dót inn... En ég held að næsta atriði sé kannski líka að finna eldhúsinnréttingu... Margt og mikið sem þarf að gera.
Svo ótal margt, en þetta er allt að koma.
Það mega allir endilega senda mér email með uppskriftum af e-u girnilegu líka, ég náttúrulega er bara húsfreyja helst þessa dagana. Ásamt því að vera tíður gestur í Bauhaus og IKEA.
Hlýjar kveðjur frá Berlín!
Hildur


4 Ummæli:
hæhæ sæta:)
Það er mikið að gera hjá ykkur í sambandi við íbúðina, mikið sem þarf að gera! En þetta tekur bara sinn tíma og verður klárað á endanum. En í sambandi við uppskriftir á gómsætum mat þá eru fullt af uppskriftum á www.eldhus.is
Kv. Auður Indíana
Æj takk kærlega. :D Ég elska þegar að fólk kommentar. En vona aðallt sé að ganga vel hjá þér.
Kv. Hildur
Veijáveijá! Blögg! Ég elska blögg, sérstaklega frá landflóttavinkonunni minni! Sakna þín til hins óendanlega svo þú mátt blogga eins og þú eigir lífið að leysa svo ég geti bombarderað kommentum á þig! :D
Æjj sakna þín mús! Kem að heimsækja þig STRAX og ég get!!!
http://i245.photobucket.com/albums/gg53/bryndissnae/DSCN8774.jpg
skoðaðu haha
Skrifa ummæli
<< Heim