Uppfærsla...
Ég fæ senda "skýrslu" frá teljaranum á síðunni minni vikulega, og alltar lítur út fyrir að e-r eða e-ð sé að fara inn á síðuna mína. Og í tilefni af því að ég las eina svona skýrslu í dag og að Jandri á afmæli þá ætla ég að þvaðra um það sem er liðið og það sem er framundan síðan frá síðastustu færslu.-Ég vinn enn á sama stað, fékk kauphækkun í staðinn fyrir nýja vinnu.
-Ég fór á DJ-Tïesto tónleikana. Gargandi, organdi snilld!
-Jólaballið var awesome-o.
-Jólin voru voða skemmtileg, jólagjöfin í ár var að mínu mati fjarstýrðar þyrlur.
-Fagnaði nýju ári í fyrsta skipti ekki með fjölskyldunni minni.
-Þessar tvær vikur sem Óli var hérna liðu alltof hratt, eins og við má búast af tímanum... Sem líður yfir höfuð voðalega hratt..
-Skólinn byrjaði af krafti og er ég búin að halda fyrirlestur um samvægi,
-Pólskur vinnufélagi minn hélt að ég væri 16 ára gömul... Hrós býst ég við.
-Sami vinnufélagi spyr mig ca. 3x á dag þegar við erum að vinna saman hvort að ég vilji giftast sér. Einnig hrós býst ég við.
-Jandri á afmæli í dag! Því verður fagnað á morgun.
-Ég er að fara vinna miiiikið um helgina.
-2. febrúar fer ég á Benny Benassi, with my gaaaang.
-Fiðluball verður bráðlega, og vantar mig kjól í tilefni af því.
-Dimissio er í... apríl. Þá verður djammað.
-Stúdentspróf nálgast eins og óð fluga...
-Ég ætla að setja í þvottavél áður en ég fer í vinnuna.
Góða helgi elskurnar.


1 Ummæli:
vrúff
Skrifa ummæli
<< Heim