mánudagur, desember 10, 2007

Kerlingin orðin 19 vetra!

Þ.e.a.s. ég átti afmæli um daginn og varð 19 ára gömul. Fagnaði því í góðra vina hópi í LASERTAG í Kópavogi. Var mætingin ágæt, þið sem gátuð ekki komið... Þið komið bara næst með í lasertag, getið ekki misst tvisvar af þess konar skemmtun, meina, common people! :D Svo eru jólaprófin byrjuð og klárast í lok þessarar viku.

Ég er búin að vera frekar dugleg að athafna mig upp á síðkastið:
-------------------------------------------------------------------------
*Sótti um nýja vinnu.
*Fór í jólapróf í japönsku og stærðfræði.
*Fór í ökumat.
*Sótti um langtímaökuskírteini.
*Fór í lasertag og átti afmæli(afmælið gerðist þó nokkuð sjálfkrafa ef ég hugsa um það)
*Fékk flensu en er að jafna mig.
*Tók líffræðipróf í morgun sem var furðulega auðvelt miðað við skyndipróf vetrarins.
*Tók mynd fyrir ökuskírteinið og fæ það nú innan 10 daga. Jei!
*Skar út laufabrauð með fjölskyldunni hennar Valborgar og Valborgu, stuuuhuuuð!
-------------------------------------------------------------------------

Ekkert fleira sem mér dettur í hug, en ég hlýt að hafa gert e-ð meira af mér...

En nú tekur við söguprófslestur, megi ég halda mér vakandi!

Ég sver það, blaðsíðurnar eru húðaðar með svefnlyfi...

Þangað til seinna beibís, og...
FUN FACT OF THE DAY! 11 dagar í það að ég fái að knúsa Óla. Vííííí...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim