I'm blogging on sunshine... wooaahaaa wooow..
Það er samt engin sól úti. Hehe ;o) Um að gera að babbla eilítið hér því að framundan er slatti af prófum, þ.e.a.s.: Kannast einhver við það að finna sér eiginlega allt annað að gera en að læra fyrir próf? Ég er ein af þessum manneskjum, til að mynda í gær þá nýtti ég þessa hneigð mína til nokkurs sem telst vera uppbyggilegt framtak. Það er ég tók rosalega vel til í herberginu mínu, í staðinn fyrir að byrja læra stærðfræðipróf. Sem er alls ekki slæmt, því að herbergið þarfnaðist tiltektar. :)Og núna er ég að blogga.. Ha Ha.Búið að vera drullumikið að gera í skólanum og er það ekkert að fara breytast upp úr þessu, jólaprófin byrja 30. nóv and so forth. Er nokkuð sátt við að fara einungis í 5 jólapróf, það er kærkomin tilbreyting frá prófafjöldanum síðustu ár..
En frá prófum og að kennurum! Kennararnir mínir eru upp til hópa skemmtilegir og finnst mér Yayoi japönskukennslustelpa tróna efst á þeim lista þessa dagana. Hún hefur tekið upp á því að byrja þessa morguntíma á því að skoða lög á YouTube, allt frá Eurovision lögum að J-pop boyböndum og þeirra,tja, spangólsrappi? Temmilega vandræðalegt og áhugavert í senn.
Random fact: Mér finnst Aladdín með íslensku tali vera skemmtileg. Horfði á hana enn og aftur um daginn. Gömlu Disney myndirnar eru klárlega það sem ætti að vera í tækinu... ALLTAF. :D Hehehe.
Annars ætla ég að fagna því að í dag eru 4 dagar þangað til að ég fæ að knúsa og kyssa ákveðinn aðila! Hlakka vægast sagt mikið til. Jibbí og jei! :)
Kannski ég ætti bara að fara læra?
..... hmmm.
En allir eiga að fara á CutewithChris, þessi kanadíski gaur er klárlega uppáhalds video tímaþjófurinn þessa dagana.
Af einhverri handahófskenndri ástæðu þá gúgglaði ég cos play og fangaði þessi mynd athygli mína:

But till some other time, ableble.


1 Ummæli:
Rautt hár, jólapróf... er ekki búið að reyna þetta áður ?
skóli? Skól? Skló ? Geturðu ekki rætt um eitthvað annað þegar maður er að reyna að flýja prófalestur!! Djísus!
Skrifa ummæli
<< Heim