Ég laug...
ég bloggaði ekki næsta fimmtudag. En núna er þarnæsti föstudagur frá síðasti bloggi. Skárra en ekki neitt, ekki satt?Ég er sumsé komin heim frá Þýskalandi og er núna fyrst að verða sátt við það. Ekki sátt við að þurfa að yfirgefa hann Óla minn, en greyið er að fara byrja í prófum svo að hann mátti varla við neinum frekari truflunum. Ég er samt skemmtileg truflun! Múha!
En ég er sérstaklega sátt við það að sólin er búin að skína á mig síðan ég kom heim, e-ð annað en þessi endalausa rigning sem var að angra mig í Berlín. Náttúrulega arfaslakt að veðrið í Evrópu fari í verkfall yfir sumartímann, eða basically alls staðar nema hérna í Norður-Atlantshafi.
Ég kom heim á mánudaginn var og tók mér 2 daga frí frá vinnu vegna slappleika og leti. En mætti semihress í vinnuna í gær og þurfti að fara til læknis. Harkaði það svo bara af mér og vann út vinnudaginn. Fór líka í vinnuna í dag og kom heim og tjillaði út á palli í sólinni, 20°C og logn. Voða gaman hjá mér. Birkir kíkti í heimsókn og ég rústaði honum í póker. Vann allt af honum. n00b r00l!
Yfir í annað... Harry Potter 5 er skemmtileg, fór á hana í gær með smáfjölskyldunni. Skemmti mér vel og varð bara engann veginn fyrir vonbrigðum.
Svo er mamma mín snillingur. Quiet bruising... Quiet Browsing.. Quit Browsing!
BÆ


1 Ummæli:
Það er soldið í það að ég verði sátt við að vera komin frá Frakklandi. Því ég er svo ótrúlega langt frá Bulgaríu og Hollandi.
Skrifa ummæli
<< Heim