Ég er hætt að telja, svei mér þá!
Ég get ekki alveg fylgst með dögunum, ég verð svo tímaskynslaus þegar ég er í fríi.Já, ég er í fríi. Samt sakna ég Íslands. Mér finnst ekki mikið varið í Bandaríkin, eða það sem ég hef séð. Ég vil ekki vera þröngsýn, svo ég get gefið þeim annan séns. Næst heimsæki ég eitthvað annað fylki.
Það sem er framundan á næstu 5 dögum:
fara í verslunarleiðangur fyrir vini, fara í DISNEY'S Magic Kingdom, fara að hitta frænku okkar, fara til Celebration, líklegast að fara að horfa á þegar rannsóknarleiðangri til Plútó er skotið á loft frá Kennedy 
Space Center (KSC, Florida Mall
ekki KFC:o) eins og mér heyrðist pabbi segja) ég er frekar spennt að sjá það, frekar merkilegur viðburður þar á ferð.
Og síðast en ekki síst, fara í flugvél og fljúga heim til míns ástkæra Íslands.
Ég er Íslendingur og er mjög stolt af því. Ég kann að tala tungumál sem aðeins tæplega 400.000 manns tala.
Jæja, þá eru þið komin með yfirlit og ég líka.
Sakna ykkar allra. Þó svo að það sé indælt að vera í fríi. Munið það. Ha?:)


4 Ummæli:
Ég vona að þú finnir fyrir þessari tilfinningu sem aðeins Yuri Gagarin og eftirfylgjendur hans hafa orðið fyrir þegar þeir klufu lofthjúp jarðar og sáu hana sem þetta risastóra bláber. Ímyndandi sér dansandi á tunglinu með "Clare de Lune" eftir Debussy ómandi innan í þessum geimhjálmi sínum. "Epiffany of joy and the realization of a dream that came true"-Gagarin.
Ég efa að þetta standi hjá þeim, enda urðu rússarnir fyrri til að fara út í geim:-P:-D. BESTIR! BÚJA!!
Gott að vita að þú ert enn á lífi, komdu heil heim, við söknum þín líka :-)
jaaa, við vorum nú að skríða í þrjúhundruð þúsundin í fyrradag (heyri ég klapp fyrir því?)
og mér finnst nú, Hildur Arna Gunnarsdóttir, að þú eigir bara að koma heim.... ég sit hérna eirðarlaus að spjalla við förrit á msn sem kallast SmartChild (minnir mig á iGod), ég er búin að dömpa öllum vinum mínum fyrir hann... mahahah...
eða bara : ég sakna þín! :D
Nú eru bara fjórir dagar eftir í þig. :D Ég get ekki beðið! :D Og, já, skemmtu þér alveg konunglega og farðu vel með þig, ég sé þig eftir fjóra daga einhverntíman :D
going stark raving mad, ég sakna þín :(
ég var að horfa á dr. Strangelove í gær, hún er awesome... "gentlemen! You can't fight in here! This is the war room!"
mahahahhahahahahhah....
Skrifa ummæli
<< Heim