3. og 4. dagarnir mínir í Kissimmee(Mosfellsbær Orlando), Florida

"Hello, how are you today?" og "Have a Great Day you guys!"
Ég er búin að fá þessa setningu í höfuðið ásamt fjölskyldunni, mjög oft. Kanar eru allir fyrir það að vera kurteisir. Sem er gott á skringilegan máta. Undarlegt hvað starfsfólk í skemmtigörðum þreytist lítið á að vera ofurkurteisir við allt og alla. Eitt klapp fyrir þeim. Hm.
Í gær fórum við í Florida Mall. Risarassaverslunarkomplex! Þetta var yfirþyrmandi stórt. Við komumst ekki í fjórðung búðanna, samt gat ég keypt föt úr Victoria's Secret, Delia's og Macy's. Nokkuð sátt við það sem ég keypti mér. Allavegana, þetta var frekar mikið fyrir lítinn Íslending. Við ætlum víst að fara aftur í eitthvað mall eða outlet. Jeij! Mér finnst gaman að eignast fallega hluti á sanngjörnu verði. En hvað um það. Sá dagur fór í lítið annað en búðarráp.
Dagurinn í dag var annað mál, við fórum að skoða Universal Studios. Sem er hrikalega stór garður, sem skiptis í Adventure Islands og Universal Studios. Við pabbi og Bryndís fórum að skoða Adventure Island, á meðan mamma og Sigrún fóru að skoða hinn hlutann. Þar sem Sigrún má ekki fara í svona tryllitæki, vegna þess að hún er ólétt. "Prospectant mothers can not go on this ride", og mamma er bara ekki gefin fyrir rússíbana. En það er þannig að í Adventure Island er svona skemmtigarður með hin ýmsu þema úr kvikmyndum, teiknimyndasögum og þvíumlíku, eins og: 'Dr. Seuss landing' þar sem persónur úr bókunum hans og hús og annað var gætt lífi, 'Jurassic Park' allt eins og í myndinni, rafmagnsgirðingin fræga og við fórum á River Adventure þar sem maður fór í gegnum einskonar 'sett' úr myndinni og risaeðlur ógnuðu manni og allt endaði með hárri rennibraut sem skall ofan í ánni með miklum gusugangi, rétt í tæka tíð áður en að T-Rex eða gleypti mann. Og líka svona Discovery Center þar sem hægt var að skoða risaeðluegg með sónartæki einhvers konar.
Annar stór staður var tileinkaður gömlum persónum, svo sem Betty da Boop, Popeye og fleiri sem ég er ekki nægilega kunnug til að muna eftir.
Auðvitað fórum við í nokkra rússíbana, fórum í rosalegan rússíbana þar sem fæturnir héngu lausir í loftinu í tveimur "drekum", einn rauður, FIRE, og annar blár, ICE, drekarnir voru í einskonar einvígi, fléttaðir saman í rosalegar slaufur og lykkjur, þá fórum við þrjú í báða, fyrst þann bláa og svo rauða, og úr varð að þeir voru báðir skemmtilegir en sá rauði var rosalegri og þar af leiðandi skemmtilegri. Ég veit samt ekki hvað þessir drekar höfðu að gera með Universal Studios. :-D
Svo var MARVEL Comic Island tileinkað, Captain America, The Fantastic Four og Dr. Doom, Spiderman, Punisher og fleiri. Líka mikið honum HULK, fórum við í Hulk rússíbana sem var geðveikt skemmtilegur, en ekki jafn geðveikur og KRAKEN sem við
Úff, ég fór á Diner inni á Marvel Comics Island í Universal Studios, skyndibitafæði er ógeðslegt og það er viðbjóðslegt hérna í USA. Við pabbi og Bryndís létum okkur hafa það því við vorum orðin frekar svöng, pöntuðum cheeseburger og franskar, við settumst niður og fórum að borða ógeðslegasta hamborgara sem ég hef smakkað, og þá sáum við mann með 2 börn, hann var rosalega feitur, og börnin stefndu í það að verða líka offitusjúklingar, þó svo það elsta hafi kannski verið 5 ára. En eftir stutta stund, eða hálfan hamborgara, þá kemur kona með stærsta rass sem ég hef á ævinni séð. Og hún var með ennþá stærri maga, hún var bókstaflega HNÖTTÓTT! Við höfum ekki séð svona feitar manneskjur í eigin persónu og við náttúrulega misstum andlitið og störðum eins og vitleysingar á hana. Og misstum öll þrjú matarlystina af þessum vonda mat og tilhugsuninni við það að vera svona eða verða. Að hugsa sér, konan var ekki einu sinni þrítug, og hún kjagaði eins og hún væri á dauðabeðinu. Hvað fær fólk til að éta svona mikið, er það einbeittur vilji að springa úr offitu fyrir fertugt?
Skil þetta ekki. Mér finnst ég svo mjó eitthvað hérna. Það er rosalegt að horfa upp á allt þetta feita fólk, keyrandi í hjólastólum eða hjólvögnum því að fæturnir bera þá ekki lengur. Sorglegt að samfélagið aðlagi fólkið í staðinn fyrir að takast á við vandann.
Kanarnir eru líka mjög forvitnir hvaðan við komum, því að við tölum mjög furðulegt tungumál fyrir þeim, enda Kanar ekki vanir indóevrópsku tungumáli sem hljómar eins og eitthvað úr heimi Tolkiens. Gott dæmi um það er einn af starfsmönnum garðsins sem var að selja og kynna Levitation galdrasett. Við féllum alveg fyrir því og keyptum þetta sett, svo ég verð víst orðinn meistari í þessu þegar ég kem heim. Já, ég ætlaði að segja ykkur dæmi! Hann spurði okkur hvaða tungumál við værum að tala, við sögðum "Icelandic", "We are from Iceland" og hann spurði þá "Iceland huh? Is that like Russia or?" Við náttúrulega leiðréttum manninn, því að við erum langt frá því að vera rússnesk, við erum norræn. Honum fannst nöfnin, Hildur, Bryndís og Gunnar rosaleg. Hann spurði mig: "What's your name?" Ég svaraði: "Hildur" Hann bara..."What, Hitler?" Hehehe, nei ekki alveg, ég er ekki Hitler. Bryndís sagði þá: "My name is Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir" gaurinn sagði: "Whoa, my name is Joey." Það var heldur skondið. Við vorum mjög framandi fyrir honum. Við reyndum líka að láta hann segja svona tungubrjóta eins og Hnoðri í norðri verður að veðri þótt síðar verði. En hann gat það ekki alveg. Greyið. en hann var góður náungi.
Jæja, þá ætla ég að hætta þessu mali og segja ykkur meira síðar.
Ykkar einlæg,
Hildur Ameríkufari.


3 Ummæli:
Marvel Studios!? Punisher!?!?!?
ARGH! Mig langar langar langar!!!
*Öfundsýki dauðans*
Feitir kanar
Mjög feitir kanar
Rosalega rosalega feitir kanar
Ég sakna þín :(
Kanar feitir já.... mikið rétt, enda aldir upp við mcdonalds og franskar frá blautu barnsbeini... gúff...
Ég vissi ekki að Sigrún væri ólétt! :O til lukku með það, verðandi móðursystir :D
sakna þín meira ;)
kv. Dóra og hitt less fatter fólkið
Skrifa ummæli
<< Heim