þriðjudagur, desember 20, 2005

Jólaball og einkunnaafhending

Í gær var ball, og þar á undan partý hjá stúlku í 4. S, mjög spes en mjög gaman, ég sé allavegana ekki eftir því að hafa mætt. Ballið var nokkuð fínt, Jagúar voru snilld eins og alltaf, en samt var stemmingin þarna ekki upp á marga fiska.
Og í dag fékk ég einkunnirnar mínar. Var sátt við flest allt og ég fékk þær einkunnir sem ég var að búast við. Það er lítið hægt að gera annað en að taka sig á í því sem maður er lakastur í og vinna að því að ná hærra á vorinu. Það þýðir ekkert að slugsa eins og einhver bjálfi. Maður er í skóla til að læra, upp á framtíðina, upp á lífið. Það veltur eiginlega allt á menntun, en ekki allt, stór hluti reyndar. Ef maður er vel menntaður í ágætu starfi þá eru það peningar sem eru mikilvægastir, eða hvað?
Núna eru 4 dagar til jóla.
Mér finnst jólin fjarsætt hugtak, það er búið að hamra svo mikið á þessu undanfarna mánuði að allt jólatengt er ekki að smella við sálarbúið mitt.
Það er eins og tíminn standi í stað.

4 Ummæli:

Þann 10:36 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Þú líka? En eins lengi og jólin þýða það að sofa langt fram á dag, borða mikinn og góðan mat, fá pakka(!) Og tala við vini sína án þess að fá "suss" frá einhverjum sköllóttum litlum gaur sem kennir stærðfræði. Þá er ég sáttur.

 
Þann 9:36 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Jól eru afsökun fyrir þá sem segjast vera kristnir til að missa sig í hvers kyns græðgi og hendi er næst. Furðulegt með meiru.

 
Þann 6:54 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

gúrk, i feel your pain... hildur, við höldum bara okkar eigin jól, þegar jólaandinn kemur yfir oss....
great

 
Þann 11:33 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól, mús! og danke schön fyrir awesome jólagjöf! :D

 

Skrifa ummæli

<< Heim