laugardagur, desember 31, 2005

Gamlársdagur ársins 2004

Nú er seinasti dagur ársins. Það eru liðnir 365 dagar síðan seinasti gamlársdagur var. Mér finnst það eiginlega ótrúlegt. Tíminn hefur liðið svo gríðarlega hratt að það er erfitt að trúa að það sé liðið heilt ár. Ég neita því ekki að þetta hafi verið viðburðaríkt ár í lífi mínu, alls ekki, tíminn er búinn að fljúga frá mér. Ætli þá að frasinn "TIME FLIES WHEN YOU ARE HAVING FUN" eigi við hér. Hver veit....
Líf í nútímasamfélagi er hratt, allt er hratt, allir vilja gera allt hratt og örugglega, drífa sig, flýttu þér, því annars missirðu af hinu og þessu! Er það ekki þannig?
Það eru að vísu einhverjar undantekningar, en þetta er aðaleinkenni nútímans að mínu mati.
Við fáum stutt jólafrí sem líður hratt.
Við fáum stutt sumar og sumarfrí sem líður alltof hratt.
Við fáum stutt frí, sem líða hratt, ekki satt?

Í kvöld munu sprengjuóðir Íslendingar sprengja gamla árið í loft upp og fagna komu nýs árs, 2006. Ég man áramótin 2000, mér fannst þau mjög merkileg. Og mér finnst líka nokkuð merkilegt að árið 2006 sé að fara ganga i garð. Það er eitthvað við tilfinninguna sem að hellist yfir mann þegar klukkan slær tólf á miðnætti á Gamlársdegi og þá er nýr dagur nýs árs hafinn, svona tilfinning sem erfitt er að lýsa en þið hljótið að finna fyrir henni.



Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Vil samt vekja athygli á litla, nýja teljaranum mínum hérna neðst á síðunni. Ég er að vonast til þess að hann eignist vin sem heitir gestabók bráðlega. Hvernig líst ykkur á það?

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

1 Ummæli:

Þann 1:26 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Same shit diffrent year?
Ég vona innilega ekki:-)

 

Skrifa ummæli

<< Heim