Naples, Napoli! FLORIDA! Norður-Ameríka?
(8)'allo 'allo, Ich bin Andreas, und ich kommt nicht aus Berlin.(8)Úff, 10. bekkur allover again?!
Nei, djókur. Ég er ennþá í "America, Fuck YEAH!". Og í þetta skiptið er ég niðri við strönd, við keyrðum heil lengi í gær og fórum til Naples að hitta Sigrúnu og vinkonu hennar TJ. Ég naut mín í botn eiginlega alla leið því að ég hafði iPodinn hans pabba sem er stútfullur af alls konar tónlist sem ég fíla. Við pabbi höfum ekkert svo ósvipaðan tónlistarsmekk.
En fyrst ætla ég að segja ykkur að við fundum lítinn bæ sem heitir Celebration, og hann er eini bærinn í Orlando sem er eitthvað líkur Evrópu. Fallegt vatn, bryggja, lítil hús, göngugata, götumarkaður, verslunargata með krúttilegum búðum. Þetta litla sæta hverfi er reyndar á svæði í eigu Disney. En mér finnst jákvætt að sjá gangstéttar, ég var farin að halda að þessir kanar gengu aldrei. Álit mitt á þessu samfélagi er ekki mikið, til dæmis get ég sagt ykkur að það var "Stand off" í supermarkaði í gær rétt hjá okkur. Maður missti vitið og í bræði sinni skaut hann fólkið í súpermarkaðinum, margir særðir og jafnvel dánir. Á Íslandi hefði vitstola maður kannski hjólað í einhvern og lamið hann í spað. Það er vegna þess að það er ekki svona mikið um byssur á litla Íslandi. Geðsjúklingurinn var svo yfirbugaður af S.W.A.T. og allar leiðir lokaðar að svæðinu. Ég fæ bara gæsahúð að hugsa til þess að kannski hefði fjölskyldan mín getað verið þarna. Þetta þjóðfélag er svo fokking brenglað. Fólk hefur Bandarískafánann á bílnum sínum. Og svo er alltaf verið að auglýsa “OUR HEROS” aumingja hermennina sem halda að þeir séu að berjast fyrir góðum málstað. Svo stendur fólk, heldur um brjóst sér og er stolt af því að vera Amerískt.
En í Celebration fórum við á Magic Nail salon. Og það var kínverskur gaur sem gerði á mig neglurnar. Hann skyldi ekki verkbeiðnina sína og ekki mig heldur og setti á mig öðruvísi neglur en ég borgaði fyrir. Svo ég er með rosalegar french manicure steyptar neglur. Híhíhí. Algjör pæja allt í einu.
En já, við fórum svo í Downtown Disney á laugardagskvöldið, það var kaldasta veður sem ég hef lent í, 3°C, við þurftum að vera í öllum tiltækum yfirhöfnum, keyptum okkur vettlinga merkta Planet Hollywood og fórum svo út að borða.


6 Ummæli:
Ég sakna tíundabekkjar þýskunnar... :(
Og enn á ný kemur internetið með sannleikann:
Þetta útskýrir hvernig Bush hagar sér! http://b2.is/?sida=tengill&id=141944
ihihihihihhi.... *manískur hlátur* told you so!
Guð, nú hef ég tvöfaldar áhyggjur af þér. Ég skil ekki af hverju ykkur langaði þarna, sérstaklega honum föður þínum sem hefur alltaf að ég held haft óbeit á Bandaríkjunum.
Þú lofar mér bara að flýja ef eitthvað svona hendir þig, þú verður að koma heil heim. :(
Getur maður búist við öðru frá fólki sem kynnti okkur fyrir "Ghost Busters", "Gremlins" og Arnold Schwarzenegger.
Þeir gefa friðarverðlaun til þeirra sem hefja styrjaldir, þeir heiðra þá sem drepa mann og annan. Og á endanum þá ráða þeir kínverja í vinnu sem skilja mann ekki:P
"Is all that we see or seem
But a dream within a dream?"
-Edgar Allan Poe.
:-)
hey, Ghostbusters var awesome! Ah! The Marsmallow Man!
reyndar langt síðan ég sá hana, en hún er awesome í minningunni... hahahah :D
Já, ég er alltaf jafnhissa að hugsa til þess að pabbi kom hingað. Eins og hann nú hefur mikla óbeit á Georg W. Bush.
"Who you gonna call, THOSE BASTARDS"(Ruglingur á Ghostbusters-laginu, ~www.kissthisguy.com)
Ég er ekki spennt fyrir þessu landi. Þetta er seinasta landið í heiminum sem ég ætla að heimsækja á ný. Frekar fer ég á aðra plánetu en að koma hingað. Ég bara þoli ekki þetta þjóðfélag. Ekki að það mér finnist leiðinlegt að ferðast með fjölskyldunni minni, en Bandaríkin. Ullabjakk. :-p
Til gamans má geta að ef maður hleypur í ekki svo til gerðum skóm og fatnaði þá álíta Kanar mann vera þjóf. Fífl.
Þeir á litlu vélknúnu fitustólum. Piff. Ég sakna Íslands.
Ahahahahahahaha, hálfvitar! Hefur það komið fyrir ykkur að einhver haldi að þið séuð þjófar þegar þið eruð að hlaupa? En asnalegt. :D Eins og fólk megi ekki drífa sig.
Skrifa ummæli
<< Heim