þriðjudagur, janúar 03, 2006

1. og 2. dagurinn minn í Orlando, Florida.

Já, hæ, þið! Ferðin út tók rúma 8 klukkustundir. Það er ekkert grín að sitja svona rosalega lengi í flugvél og hafa lesbískt par við hlið sér og þegar þú situr við gluggann. Vá, ég þurfti alltaf að vera klöngrast yfir þær ef ég vildi hugsa mér til hreyfings. Og ég horfði á 2 bíómyndir og 3 sjónvarpsþætti. Sofnaði ekki eitt augnablik. En það hefði verið voðlega nytsamlegt og heppilegt. Hvað varð um öfundsverða eiginleikann minn að geta sofnað hvar sem er og hvenær sem er? Ojæja.
Svo vorum við einstaklega mygluð öllsömul og við tók HUGE ASS flugvöllur. En þetta gekk nokkuð smurt, tekin fingraför og mynd við komu okkar, og þegar við fórum gegn um eitthvað tæki átti að fara úr skóm og BLAZERS, hvað sem það nú er! Jakki? Ehm, og svo hefur leikstjórinn Quentin Tarantino ofsótt fjölskylduna mína. Nei djók, æj við hittum hann á brennunni á Ægisíðu og líka á Keflavíkurflugvelli. Ég er líklega sú eina sem telur það ofsóknir, hehe.
Og já, aftur að útferðinni... HAHA! nei í alvöru. Já, og töskurnar okkar fóru í langt ferðalag, alveg tvisvar sinnum á svona töskubelti á Orlando International Airport. En svo fórum við að ná í bílaleigubílinn okkar, og fólkið þarna gerði mistök svo að við fengum stærri bíl en við ætluðum okkur að fá, fyrir jafnmikinn pening. Sem er gott, og ég veit ekki hvort þið kannist við lítil GPS forrit sem heitir NEVERLOST, en það er búið að hjálpa okkur mikið, maður slær inn áfangastaðinn og svo er lítil tölvukona sem ég vil kalla Crystal vísar manni veginn með korti og leiðbeiningum. Fjölskyldan mín væri pottþétt komin á geðveikra hæli og líkhús ef hennar nyti ekki við. Sá sem sagði að það væri auðvelt að rata í Bandaríkjunum er ótrúlegur. Þetta er allt frekar illa merkt, endalausar slaufur og leiðindi. Já, talandi um leiðindi. Þá eru vegatollar leiðindi. Eins og fyrst þegar við komum á svona vegatoll, þá vorum við ekki með klink eða smáa seðla, og litla, gamla, kínverska konan var voðalega hneyksluð og hissa: "Yu donh't have won DOLLAR?"(þýð:you don't have one dollar)
Við þurftum að játa það, en það reddaðist, og svo er húsið okkar voðlega sætt og fínt, með ferhyrndu vatni í bakgarðinum. Þetta hverfi er svona middle-upperclass hús, allt "Picture Perfect", Amerískt.
En mér finnst Bandaríkin heldur leiðinlegt land, eða það sem ég hef kynnst af því, þetta er allt byggt upp á túrisma. Og líka það er enginn samfélagskjarni, þetta er allt risastórar hraðbrautir til að tengja moll og verslunarkomplexa sem eru hverjum öðrum líkari, það er hreinlega óhugnanlegt, eilíft Déjavú! En mér finnst gaman í skemmtigörðum, og það er gnægð af þeim á þessum slóðum. Við vorum í dag í SEA WORLD. Rosalega skemmtilegt, þar var að finna heilan haug af dýrategundum. Sæhestar, mörgæsir, lundar, flamengóar, endur, háhyrningar, höfrungar, marsvín, sækýr, sæljón, otrar, hákarlar, barracudas, langvíur, skjaldbökur og tja, miklu fleiri. Og ég fór í skemmtilegasta rússíbana í dag á ævinni. RISA STÓR (eins og rassarnir á mörgum hérna) og með endalausum slaufum og hringjum og algjör snilld allan tímann. Ég var hálfdösuð þegar ég komst á lappirnar. Og við sáum 3 "show", fyrsta var með sæljónum, otrum, og hrikalega miklum aulabröndurum að hálfu þjálfaranna sem voru með sjóræningjaleikrit í kringum það. Önnur sýningin var æði, eða frekar fyndin, þar voru höfrungar og marsvín og loftfimleikar allsráðandi. Ótrúlega gaman að fylgjast með höfrungum, þeir eru svo stórir en jafnframt liprir og sætir. Þetta fjallaði um einhverja stelpu sem hafði aldrei hitt höfrung... og já. Frekar silly, því að það var stelpa sem var að leika páfagauk og var fest í vír og flaug yfir vatninu í rauðum búning, en mér fannst hún svo drepfyndin, þó svo að hún væri að reyna vera þokkafullur páfagaukur(er það bara ég?). Og svo var síðasta sýningin háhyrninga sýning, hálfgerð fræðslusýning. Og svo var svona fyrstu 14 raðirnar "Soak Zone" því að þeim fannst voðlega gaman að skvetta á fólkið. Gáfuð dýr. Endilega stríða öllum sem mest:o) Það myndi ég allavegana gera.
Þessi garður var fínn, ég vænti þess að við kíkjum í Wet'n Wild eða Universal Studios á næstunni. Og svo er það sólin, ég hafði saknað hennar heima á Íslandi. Kanar eru vitlausir, eða öfgafullir, því á daginn er heitt þegar sólin skín, svo gengur maður inn í verslun eða eitthvað og þá er hitinn við frostmark. Og það er frekar óþægilegt, maður er nefnilega heldur léttklæddur. Æj, þeir eru bara ekki sniðugir. Þeir gera víst alveg öfugt á veturnar. Þegar ískalt er úti þá kynda þeir of mikið. Hvað varð um hinn gullna meðalveg.
Klukkan hérna er bara hálftíu þann 4. janúar. Og fjölskyldan mín er útkeyrðn, því að við erum ekki búin að venjast tímamismuninum. Piff.
Jæja, ég vil tileinka Halldóru "Dóru" minni þetta blog. Því að Dóra á afmæli í dag, eða á morgun, TIL HAMINGJU SÆTUST! :-D
Meira síðar úr Kanalandi.

4 Ummæli:

Þann 1:24 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Jeij!:D Hljómar eins og algjör paradís, meira að segja rödd sem segir: "Turn left at next intersection":P
Endilega haltu áfram að segja frá öllum ævintýrum þínum!:D

 
Þann 7:17 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hildur, þetta er besta afmælisgjöf í geimi! awesome blogg frá þér! ég.is/happy! (lúði, ég veit)
Ég elska svona tölvukonur sem segja manni hvert skal halda, vorum með svoleiðis í baltimore í fyrra... án hennar værum við líklegast ennþá þarna... hahaha :D
ah, simple minds simple pleasures!
mér líst á komment samband! annars ætti ég að vera í fýlu útí þig fyrir að stinga mig svona af :(
Gleðilegt ár, mús! :D

 
Þann 7:20 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

einu sinni heyrði ég fyndinn brandara af vestur íslendingi.... mamma hans var drepin af car-i, greyið konan....
ég hló allavega

 
Þann 4:05 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Váts! Höfrungar! Váts! Náðirðu að skilja það sem þeir voru að segja? Nei, djók :D

En, já, ég er að sakna þín alveg ýkt mikið, drífðu þig að skemmta þér alveg ógeðslega mikið og endilega skrifaðu sem mest um ferðalög þín í Kanalandi

Og annað: Það er ekki til neinn gullin meðalvegur hjá Bandaríkjamönnum

 

Skrifa ummæli

<< Heim