fimmtudagur, desember 15, 2005

Att bú

Jólafríið er gengið í garð og ég finn jóla andann færast yfir mig. Nei, reyndar ekki en samt. Seinasta prófið var í dag; ferlega stutt íslenskupróf, mig grunar að íslenskukennarinn minn nenni ekki að fara yfir löng og leiðinleg próf áður en hann fer til útlanda yfir hátíðarnar. Skil hann vel. Í dag sótti ég ökuskírteinið mitt, ásamt Þóri. Og þið getið ekki ímyndað ykkur en það var sama konan og afgreiddi mig seinast þarna. Og ég minnti hana á að ég væri froskastelpan, og hún hló að því.
Svo spurði ég hvort hún væri ekki sama sinnis þá sagðist hún ekki ætla að segja neitt. En þögn er það sama og samþykki, krakkar mínir.
Í dag er ég frjáls, frjáls undan hlekkjum prófanna. Já, ég get gert meira og minna allt sem mig lystir.
Anyone for Curry?

2 Ummæli:

Þann 2:36 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Karrý karrý karrý karrý!
Í jólagjöf ætla ég að gefa þér bjór (dýrið) neglt á tréplanka, svo að þú getir rústað illum vélmönnum ;)

 
Þann 11:57 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Til lukku með prófin, Hildur mín! :D
ah, mér líkar við jólafríið....
við þurfum að gera eitthvað skemmtilegt! :D

 

Skrifa ummæli

<< Heim