SPAM SPAM SPAM SPAM LOVELY SPAM!
Já, Monty Python's Flying Circus er svo sannarlega búinn að bjarga jólunum mínum.Ég er að fara yfirgefa land og þjóð eftir 3 daga og halda til Bandaríkjanna í 2 vikur samfleytt og stefni á að koma hingað aftur eftir það.
Ólíkt skólafélögum mínum flestum, þá er ég byrjuð að læra heima. Því að það að missa af svona mörgum tímum er ekki gott. Svo ég þarf einhvern veginn að halda mér við efnið og dragast sem minnst aftur úr.
Svo að Auðun kennarinn minn ætlar að hjálpa mér í dag.
Ég ætla líka að halda dagbók á meðan ég er úti svo að þið getið fylgst með afdrifum mínum í þessu andskoti stóra landi. Sjáumst!:o)


3 Ummæli:
Jeij! Nákvæmlega það sem allir þurfa, einkakennslu milli jóla og nýárs. Ég bið innilega að heilsa kennara vorum og bið honum yndislegt nýtt ár.
Jeij, þú finnur samt tíma á msn er það ekki?
Tíhíhí:-D Jú, auðvitað! Ég er svo mikill MSN fíkill að ég efast ekki um að ég eigi eftir að finna mér einhvern tíma í það að hanga á MSN, þó svo að ég sé í öðrum heimshluta!:-p
Skrifa ummæli
<< Heim