18. desember!

Nú eru aðeins tæpar 10 mínutur eftir að sunnudeginum 18. desember, hinum fjórða í aðventu, deginum fyrir jólaball MR. Já, það er jólaball kæru vinir á morgun. Gleðjumst! Jeij! Svo fara flest allir þunnir að sækja einkunnir daginn eftir. Kostulegt það.
Annars fór dagurinn að mestu leyti í það að kaupa jólagjafir handa vinum. Gaman að því? Hmmmm.... Ég þarf að fara taka til í herberginu mínu. Ég bara verð, en ég nenni því ekki. Það er ekki gott. En ykkur er alveg sama, er það ekki? HHAA? Djók, ég ætla samt, hér og nú að segja ykkur að ég er farin að taka til. Það mun verða hreint fyrir kl. átta um morguninn 19. desember. Það eru nákvæmlega 3 vikur þangað til að fjölskyldan mín stingur af til annarar heimsálfu, Norður Ameríku til að vera præcis. En allir þeir sem ætla að gefa mér jólagjöf og skoða þetta blogg gefi sig fram. Mér finnst alltaf svo gaman þegar þið kommentið. Makes me feel loved.
En nú er ég farin, tiltekt hafin!
Adios, buenos noches zliebschatz!?


3 Ummæli:
Ég les bloggið þitt eins og mér væri borgað fyrir það. Og ég er enn að reyna að finna handa þér gjöf:P, Wish me luck:D
Ég óska þér lukku!
hullo :D
ég kommenta.... en það er oftast eitthvað ótrúlega tilgangslaust komment.... hmmm... eins og þetta...
gúúúúúúúúúrk, ég þarf að sækja einkunnirnar mínar klukkan 9 á morgun, það verður skrautlegt
nema kannski fæ ég þær ekki þar sem ég er búin að týna einhverri bévítans bókasafnsbók
andskotinn sjálfur - Jóla hvað?
Skrifa ummæli
<< Heim