mánudagur, október 13, 2003

Hæ hó, hæ hó, hæ hó, við höfum ei fengi nóg!

Guten Abend alles klaar?
Vó, passið ykkur, ég er orðin svo þrusugóð í þýsku... Mwahahahahaha! Úffenpúffen! Jæja, ég hef setið með sveittan skallann... sem ég er ekki með... og lært heil ósköp. Og allt í eðlisfræði og agnar ögn í öðrum fögum!!! Úhúúú! Núna veit ég mikið um inntakskraft og úttakskraft og talíur og trissur og ása og fleira skemmtó um vélar... jájá.. bara komin tími til að ég lesi eitthvað í eðlisfræði. Er búin að svíkjast undan því svolítið oft í vetur. Próf líka á næstu grösum. Að ég held..
EN OMG OMG OMG OMG!!! Ég er búin að missa það mikið úr skólanum að ég á eftir að taka próf úr 'The Wave', "ágætis" enskubók, og 2 dönskupróf úr sögunum 'Mordet på stranden' og 'Mord efter middag'. Er ekki alveg búin að klára 'Mordet på stranden', en stefni á það í kvöld. Svo er það líffræði prófið, sem er líklegast skemmtilegt og auðvelt. Þýsku prófið, "Sprechen sie Deutsch bitte?" "Ja, klar!" HEHE! OG að síðustu próf í íslenskri málfræði! Bekkurinn minn, tók allra fyrstur þetta próf núna í morgun, og var mikið kvartað og kveinað yfir því hvað þetta væri erfitt próf! Kennarinn viðurkenndi það óhikandi, sagði að við þyrftum að vera viðbúin öllu svona erfiðu, því samræmdu prófin væru sko ekkert grín og mjög erfið. Ég vil nýta tækifærið og minna á það að SAMRÆMDU prófin eru skrifuð með emmi en ekki enni. Ég hef all oft heyrt og séð fólk tala um samRÆNDU prófin. :Ð Það er reyndar bara ógeðslega fyndið, en bara svona að taka það fram.. SAMRÆMDU... ;)

Tilkynning: Frí á sundæfingu á morgun!!! YAY... skiptir mig ekki það miklu máli, þar sem ég má ekki synda á morgun! hrmpf..

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim