HVAÐ ER MÁLIÐ!!! :@
VÓHÓHÓÓÓ!! Passaðu þig blogger asnibjálfabananakúkalabbi!! Aahh, nú líður mér betur, nei djók!:P Ég er að verða brjáluð! Blogger ætlar greinilega ekki að leyfa mér að lýsa hvað mér fannst gaman á föstudag, fyrsta deginum í hálfan mánuð síðan ég fékk þessi lungnabólgu, sem ég er reyndar ennþá með að hluta til. En hvað er málið?? Þessi dagur var yndislegur. Bara það að KOMAST úúúút. Ég, náttúrubarnið búið að lenda í helvítis lungnabólgu, ekki að ég hafi eitthvað á móti því að vera heima hjá elsku fjölskyldunni minni, þau eru öll voða góð, en það er svo fúlt að verða svona mikið veik og ekki geta synt, verið í skólanum eða lifað lífinu. Heldur hósta þangað til að mér finnst eg vera að deyja! Ef ég hefði ekki fengið góð lyf, þá hefði ég getað steindrepist! Auðvitað steindrepst ég ekkert því ég ætla sko að lifa til 300 ára aldurs og vera alltaf jafn fögur.. ööh hóst.:P En þetta er búið að vera ógeðsleg lífsreynsla. Núna í restina hósta ég háræðum og ýmsu gumsi. Já, röntgenið sýndi að ég er ekki alveg búin með lungnabólguna og þarf kannski að fara á Doxytab! Sama lyf og ég fór á þegar ég fékk slæmu inflúensuna fyrir IMÍ í byrjun ársins! Það var ekta Asíu Inflúensa var mér sagt. Hví, ó hví er ég svona óheppin þegar ég á að fara keppa!! Er þetta oftast slæmar pestar áður en ég á að fara til Vestmannaeyja, GARG!! :(Já, já, ég reyni að taka þessu með jafnaðargeði en það er bara varla FOKkING HÆGT!:(:(:(:( Róleg vænan! :/ Þetta er virkilega ósanngjarnt. Ég mun sjálfsagt læra eitthvað af þessu, t.d. að maður á ekki að fá lungnabólgu og það er virkilega gott að passa sig á að fá ekki lungnabólgu og hehehe ok... Þetta er bara lífsreynsla.
Gerði ensku stíl áðan sem var undarlega léttur. Er þetta bara ég eða er enska alveg rosalega létt tungumál? Allavegna finnst mér það rosalega létt og skemmtilegt. :) Þetta sýjast bara inn í hausinn á mér og er munað þar. Skrambi ánægjulegt.. tíhíhíhí;) Ég og tungumál skiljum hvort annað. eða ég tungumál, já frekar það. :D
Ætla fara að vinna upp síðustu viku skólans. Meira seinna;) Bæjó:)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim