Lof sé fyrir nútímatækni í læknavísindum!!! Hallelúja!
Hæ hó og dillidillidó...Mér líður mun betur núna. Er samt alveg rosalega slöpp. Auðvitað, þessi vírus er erfiður.
Dagurinn í dag var ekki svo slæmur. Varð rosalega ánægð að elsku Ingunn kom í heimsókn til að kíkja á mig. Og stoppaði lengi! Jeij! :) Við reyndum að leysa þessa blessuðu gátu Alberts heitins en við vorum næstum búnar þegar hungrið sigraði okkur og við fengum okkur að borða. Horfðum á Fear Factr í smá tíma. Höfðum ekki brjóst í okkur til að horfa á heimska Kana pynta sjálfan sig fyrir pengina og snerum okkur að baggalút.is. Þetta er svo fyndin síða, við Ingunn erum alveg sammála um að þetta er ein fyndnasta síða í heimi. Ég er líka alveg viss að margir eru mér sammála í þeim efnum!!!!!!!!!
Fear Factor er tryllingslega klikkaður þáttur. Dæmigert hvað Bandarískt fólk eru miklir hálfvitar. Reyndar bara margir, gera hvað sem er fyrir peninga. Taka sig til og éta orma á tímamörkum, eða kafa í einhver ógeðslegum skriðdýrum, eða klifra upp í þyrlu á ofsa hraða. OK, þetta hljíomar allt voða voða gaman. En ég vil helst sleppa við svona viðbjóð! :þ
"Newsflash everyone!" Ég held að ég komist í skólann á morgun! JIbbÍ SKIBBÍ... En það ömurlega er að allir, eiginlega allir eru að fara til Eyja um helgina að keppa og ég missi af því að koma með! Auðvitað keppi ég ekki í þessu ástandi en það eru svo leiðinlegt að missa af því að fara. Svo ósanngjarnt að fá helvítis lungnabólgu vírus.
Um að gera og hugsa jákvætt þó. Hún Svava mín kom við fyrir hádegi og gaf mér flösku, með góðum anda í. Og fylgdi bréf með sem var virkilega upplífgandi og alveg dæmigert af henni Svövu að vera svona YNDISLEG! Rosalega góð stelpa og góð vinkona. Heppin ég:):):)
Er ég verð svona veik þá tek ég eftir að fólki er svo alls ekki sama um mig. GAMAN AÐ EIGA GÓÐA VINI!!! :)
Ég ætla að gera smá í stærðfræði og fara svo að sofaaaaaaaaa..... Kannski ég kíki í Frostaskjól á morgun, humm já, geri það:D


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim