laugardagur, október 11, 2003

meir um föstudag

híhíhí.. ég er alveg óstöðvandi bloggari.. ha?? hehe. Skooommm. Núna ætla ég að fara nánar út í Frostaskjóls ferðina mína. Já já. Kom upp í Frosta. Nokkuð mikið um 9. bekkinga, þeir hanga þarna víst margir. OG var ekki Grétar Frétar barnaskólabekkjarbróðir minn líka þar. Hann var alltaf að smella að mér fingrum í PÓGÓ. Hann kvað það vera kjæk! Maður smellur ekki fingri að dömum nema maður vilji fá löðrung! Allavegana fannst mér það óþolandi. Annars er PÓGÓ SKEMMTILEGASTI boltaleikur sem ég hef spilað. Því ég er ekki góð í fótbolta, nema í marki, mér gengur gott eitt til þegar ég tek mig til í marki. Annars þá er pógó schnilld. Haffi, Grétar, strákurinn sem ég man ekki alveg hvað heitir, litli Arnar og 2 starfsmenn Frosta tóku þátt í Pógó, jú og María var í smástund líka. Ég náttúrulega lungnabólgusjúklingur og ekki búin að hreyfa mig neitt í hálfan mánuð og er verðlaunuð með harðsperrum í rassinum, eða rassperrur eins og ég kýs að kalla það. :):) : /

Eftir að Haffi þurfti að fara heim, varð ég að bíða eftir mömmu, hún var í hárgreiðslu fyrir árshátíðina, og Arnar litli spurði mig að dálitlu fyndnu, ég var ekki viðbúin við svona spurningu og varð að bæla niður fliss. En þetta var fyndið, mjög fyndið. :);)
Þegar mamma sótti mig var hún alveg stórglæsileg um hárið, og átti hún eftir að fara í förðun og varð enn glæsilegri eftir það. Æjj, mamma getur verið svo mikið krútt:)
Ég eyddi gærkvöldinu ein hálfveik og slöpp. Litla systir fór í bíó, mamma og pabbi árshátíð, stóra systir er úti í Þýskalandi og fer á leikinn á eftir. Actually FER!! :-O heppin:�
ÉG M� EKKI FARA ÚT og allir krakkarnir eru úti í Eyjum að keppa. Þetta er svo ári ósanngjarnt :'(

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim