Hvernig var föstudagurinn hjá þér Hildur??
Það er einfalt svar. Hann var misjafn eins og hann var margur. DjÓK!:) Fínn í stórum dráttum er betur orðað.Vaknaði "eldsnemma", sem sagt kl. 10, fékk að vita að ég átti pantaðan tíma hjá lækni eftir 30 mínutur, svo að ég fékk mér morgunmat og mamma mín tók mig út á Nes. Ja jámm. Fékk læknirinn sjúkrasöguna, og hann hlustaði mig og sagði að ég þyrfti kannski að fara á lyf, dyxoflyxin eða eitthvað... jesús ég get ekki.. hey jú, Doxytab! Úúúú ég gat munað það... jeij.. Allavegana :$ Hann vildi senda mig í lungnaröntgen upp í Domus, Acut, svo ég fór í röntgen upp í DOMUS MEDICA!! Var látin standa ber að ofan fyrir framan myndaspjald eða hvað það nú kallast. Teknar myndir af lungunum mínum að mér skildist. :S Teknar 2 myndir í fyrra skiptið. Alveg svakalegar stellingar sem maður er settur í. "Haltu svona um hausinn, horfðu niður, dragðu djúpt andann, haltu niðri í þér andanum og vertu alveg kyrr" *hlaup að myndavélinni* *Brrrrrrrrrrrrrrrrrruuuuuuurrrr* Og þannig var þetta nokkurn veginn.
Þurfti að taka eina mynd í viðbót svo ég þurfti að standa aftur ber að ofan!! Djísess: /
Já, eftir röntgen þá fór ég í skólann!! Hugsið ykkur, í skólann!!! Hef ekki farið í skólann í hálfan mánuð. :) Bekkjarsystkin mín tóku flest vel á móti mér, eða mjög hissa að sjá mig í skólanum... hehe. Við fórum í einn tíma, íslensku, svo er kennarinn líka með snert af lungnabólgu, eða það sagði hún, talaði um að ég væri veik fyrir eins og hún. ÉG VEIK FYRIR!?? Ég er nú oftast mjög hraust takk!!! hvæs bara. En ég nennti ekki að rífast við kennarann!
Eftir skóla þá fór ég upp í Frosta :):):) Hitti hann Haffa. Tók hann æðislega vel á móti mér, sýndi hann mér svarið við gátunni hérna og hafði hann dundað sér við þetta á svona 20 mínutum. Aðdáunarvert get ég sagt ykkur! Ég fer ofur sjaldan upp í Frosta svo að þetta var áhugaverð upplifun fyrir mér


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim