mánudagur, október 13, 2003

Hæ hæ hæ ...

Daginn alles.

Ok. ég vil koma því á hreint að það var skemmtilegt í Þjóðleikhúsinu í gær. Nema eftir hlé.. og þó. En það voru hjón þarna með litla stelpu. Konan sat við hliðina á mér fyrir hlé en karlinn eftir hlé. Og það eru takmörk fyrir því hvað maður gerir í leikhúsi. Maður prumpar ekki í leikhúsi!!!!!! DJÍSESS!! Ég var að kafna á staðnum. Helvítis karlinn fretaði þarna!! TVISVAR SINNUM! Ég var í andnauð fyrir... svo þetta var alveg óþarfi hjá honum!! "Damn you for drinking beer old man"

Það var líka dúllulegt að fylgjast með litlu börnum gráta þegar þau sáu Mikka ref. Þótti mörgum krökkunum hann í skelfilegri kantinum. Rosalega skemmtilega leikinn af Þresti Leó....:)

Jæja, núna er ég komin á Doxýtab, svo að þessi lungnabólga ætti að fara hverfa fljótlega, ég er búin að fá nokkur skemmtileg hóstaköst í dag, og öll í leiklist. LEIKLIST ER EIN STÓR SNILLD! Áttum að lesa ljóð, sem voru dreifð á okkur og svo drógum við miða með tilfinningunum sem við áttum að lesa ljóðið með. Ég fékk reyndar frekar klámfengið ljóð, svo að fólk var að deyja úr hlátri. Svo átti ég að lesa það með gráti. OG var þetta frekar magnþrungið. hehehhe!!! :)
Svo er Litli Skrekkur á fimmtudag. úff.. þetta verður ótrúlega fyndið að taka þátt. Hverjir ætli verði dómarar? Gaman að fá að vita. En ég þarf að fara læra læra læra meira.. Gísli Súrsson awaits me. Og eðlisfræði, stærðfræði líka og danska og... hehehhehe! Ég er bara farin.
Sjáumst peeps;)

Lag dagsins: Lagið þar sem hljómsveitin er uppi á stóru fundar hringborði og fólk dansa í kring. Funny myndband :þ

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim