miðvikudagur, október 08, 2003

Gáta Einsteins

Sagt er að Albert Einstein hafi sett fram þessa gátu: Fimm hús í fimm mismundandi litum standa í röð frá vinstri til hægri. Í hverju húsi býr maður af ákveðnu þjóðerni, engir tveir af því sama. Íbúarnir fimm drekka ákveðinn drykk, reykja ákveðna vindlategund og hafa ákveðið gæludýr. Engir tveir drekka sama drykkin, reykja sömu vindlategund eða halda sama gæludýrið. Aðrar upplýsingar:

1. Bretinn býr í rauða húsinu.
2. Svíinn hefur hunda sem gæludýr.
3. Daninn drekkur te.
4. Græna húsið er næsta hús vinstra megin við það hvíta.
5. Íbúi græna hússins drekkur kaffi.
6. Sá sem reykir Pall Mall heldur fugla.
7. Íbúi gula hússins reykir Dunhill.
8. Íbúi hússins í miðjunni drekkur mjólk.
9. Norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu.
10.Sá sem reykir Blends býr við hliðina á þeim sem heldur ketti.
11.Sá sem á hest býr við hliðina á þeim sem heldur ketti.
12.Sá sem reykir Bluemasters drekkur bjór.
13.Þjóðverjinn reykir Prince.
14.Norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu.
15.Sá sem reykir Blends býr við hliðina á þeim sem drekkur vatn.

Hver á fiskinn?

Þess má til gamans geta að Einstein fullyrti að aðeins 2% fólks gæti leyst gátuna. Hann var þó varla í aðstöðu til að dæma það og ég held að flestir ættu að geta leyst hana með þolinmæði. :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim