laugardagur, október 11, 2003

ok. ég þarf greinilega að skrifa hratt, til að ícshlensgu stafirnir komi!! gvagg..

jæja, ég þarf að þýða þetta kjaftæði fyrir neðan... þar stendur:
meir um föstudag
hehehhehe, ég er orðin alveg óstöðvandi bloggari...ha? hehe. Skooommm, núna ætla ég að fara nánar út í frostaferðina mína í gær. Fór upp í Frostaskjól, þar var nokkuð mikið um 9. bekkinga, þeir hanga víst þarna margir, enda öruggt stuð tryggt.. nei það er undir hverjum og einum komið, eða hvað? OG var enginn annar en hann Grétar Fretar þarna, gamli bekkjarbróðir minn úr Meló! Hann telur sig víst mjög kaldan, var stanslaust að smella fingrum að mér þegar ég var að spila pógó með krökkunum. Það var í svona frekar óþolandi. Ég myndi ekki smella mikið fingrum að fólki, nema ég vilji verða löðrunguð! :þ Segi bara svona.. Allavegana hans útskýring var að þetta væri kækur hjá honum. AS IF! Hehehe.. ;) En PÓGÓ er hins vegar skemmtilegasti boltaleikur í heimi... brennó er líka gaman en þetta er skemmtilegra...hehe. Ég stóð mig ekkert sérstaklega vel, miðað við að ég er búin að vera veik í meira en hálfan mánuð. Fékk líka þessar dýrðlegu rass harðsperrur, sem ég kýs að kalla rasssperrur. Þær eru reyndar mjög óþægilegar en ég reyni bara að teygja á.hehe;)

Eftir að Haffi þurfti að fara heim, þurfti ég að bíða eftir að mamma kæmi að sækja mig, því hún hafði verið í hárgreiðslu fyrir árshátíðina, og var hún alveg stórglæsileg, en það fyndna var að hann Arnar litli spurði mig að dálitlu fyndnu og tók það verulega á að bæla niður flissið. Hann var alveg sannfærður um að það væri eitthvað milli mín og Haffa. En ég verð að fara núna. Tala við ykkur seinna fólkenz;)

Mamma er að reka mig í rúmið, þrefalt húrra fyrir því, hehe

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim