Múhahahahaha!!
Ég segi stríð á höndum banana! Það eru 2 bananar búnir að gera mér óleik á síðasta korterinu!! Er það alveg persónulegt met skal ég segja ykkur!!! ALGERLEGA FÁRANLEGT! Eins og mér þykja bananar góðir :(Í meðalstórum banana eru 100 kaloríur, þar með hinn besti orkugjafi!! Tiss... varð bara að segja ykkur þetta. Ég er búin að vera velta fyrir að setja teljara... Athuga hvort Sigga skoðar síðuna nógu oft.. annars þarf ég að senda henni fréttir.. :P:)
Nei bara grín Sigga mín. Ef þ.e.a.s. þú lest þetta hérna ;)
Ég er að fara í klippingu á morgun!!! Ég hef ekki farið í klippingu í marga mánuði!! Er líka komin með þetta síða hár... Jæja, á ég að fá mér hanakamb? Kannski brodda? Sköllótt? HA, LENGINGU? Nei, ég sé til... Endilega gefið mér hugmyndir :)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim