þriðjudagur, apríl 14, 2009

Nei sko, páskarnir búnir! Vorið er komið!


Páskarnir mínir voru með öðru sniði heldur en vanalega. Ég vaknaði og faldi sjálf páskaegg, í staðinn fyrir að það væri bara falið fyrir mér. Mér fannst mjög skrýtið að vera ekki á Íslandi með fjölskyldunni yfir páskana. Það voru einhvern veginn ekki almennilegir páskar. Þó svo að nokkurn veginn allt hafi verið lokað hérna í Berlín, eins og er svo oft á sunnudögum, þá voru varla páskar. Samt awesome að borða íslenskt páskaegg.
Apríl mánuður er búinn að einkennast af sólríkum, hlýjum dögum. Fór m.a. í minigolf, óteljandi lautarferðir, frisbee og boltaleiki. Seinustu 2 daga er ég búin að vera mikið úti í sólinni og er núna smá sólbrunnin og með pínu hausverk.
Annað í fréttum er að ég er búin að vera geðveikt dugleg að mæta í ræktina og borða hollan mat. Takmarkið er að verða 63 kg í júní og lítur allt út fyrir að það ætli að takast hjá mér. Annað í fréttum er að við erum búin að velja allt fyrir eldhúsið, bókstaflega allt. Og Uwe verktakinn okkar sagði að hann kæmi í lok næstu viku, s.s. 23. eða 24. apríl! Get ekki beðið mikið lengur eftir að fá eldhús. Meina sure, ég borða mikið af grænmeti, ávöxtum, hrísgrjónum og brauði. En almennilegur kjötbiti eða almennilegur réttur væri kærkominn tilbreyting fyrir matargatið Hildi. Og hvað þá hann Óla greyið, síðan ég breytti um lífsstíl þá borðar greyið varla :P
En í gær, fyrsta skipti í lengri tíma, þá fékk ég grillað kjöt. Það var upplifun, en þar áður gleymdi ég að stimpla miðann minn í U-bahn.
Ég var sem sagt með miða og óeinkennisklæddir miðatjékkunar menn komu og sáu að ég var ekki með stimplaðan miða. Ég og Pummi reyndum að tala þá út úr því að gera mál úr þessu og leyfa mér bara að stimpla miðann á næstu stöð, var bara búin að fara eina stöð með lestinni, en hann tók það ekki í mál. Ég átti að fylla út upplýsingar svo að hægt væri að senda mér e-ð bréf, en ég var ekki með nein persónuskilríki, ég er ekki skráð hjá ráðhúsi, þá vildi hann meina að það þyrfti bara að fara til lögreglunnar ef ég borgaði ekki 40 evrur á staðnum. Pummi var gáttuð á hvað hann var dónalegur og vildi ekki líta fram hjá þessu. Svo að ég borgaði á staðnum aleiguna mína. Frekar súrt. Mér fyndist þetta annað mál ef að ég hefði yfirhöfuð ekki keypt mér miða... þá væri ég bara plainly að svindla. Fokking bull. Núna á ég uþb. 5 evrur. Jei. Fátækt!
Ég held ég fari bara í ræktina núna að reyna hlaupa frá vandamálunum mínum á hlaupabrettinu.
Ble

3 Ummæli:

Þann 2:43 e.h. , Anonymous Valborg sagði...

haha

 
Þann 10:03 e.h. , Blogger Halldóra Eldjárn sagði...

Sjiz, ég skal koma og berja þýska miðaverði fyrir þig, anytime! Þú mátt borga mér í staðinn með sólskini og línuskautarallíi! :D
Luv

 
Þann 7:37 e.h. , Blogger Unknown sagði...

Helvítis kerfi! Takk fyrir komment. Ég er pottó að fara til Berlínar í sumar í júlí/ágúst. Kannski sé ég þig þar!
Tschüssy, Birta.

 

Skrifa ummæli

<< Heim