Á morgun fæ ég gesti!

Á morgun fæ ég gesti indeed! Ekki aðeins kemur Óli heim, heldur þá koma Bryndís og Óskar um miðnætti í heimsókn á morgun! Það þykir mér tíðindi og ég hlakka mikið til.
Er alveg að drepast úr stolti hvað það er hreint og fínt hérna heima. :D
Í gærkvöldi þá voru Silja og Torti hérna hjá mér. Kvöldið byrjaði á því að við tvær fórum út að borða, komum svo heim og fórum í Superbad-drykkjuleik, s.s. horfðum á myndina og drukkum í hvert skipti sem áfengi var nefnt, þ.e.a.s. hvaða orð sem er yfir áfengi; booze, alcohol, drinks, all that jazz. Svo bættum við reyndar orðinu PARTY þarna inn í. Við vorum að drekka Dooley's og ódýrt hvítvín. Svo kom Torti með kassa af bjór, svo að bjór fór að blandast inn í málin. E-s staðar á milli drykkjuleikja, þá ákvað ég að fara drekka bara vatn. Sé ekki eftir því, er ekki neitt þunn. Silja fór heldur verr út úr þessu og var þunn hérna í morgun. Silja og Torti gistu sem sagt því að klukkan var orðin heldur of mikið þegar að ég var byrjuð að dotta upp í sófa.
Í morgun þá vöknuðum við alltof snemma og fórum á Leibniz Café að borða morgunmat, reyndar bara tvær vegna þess að Torti var e-ð sybbinn. Fengum ljúffengan franskan morgunverð með baguette, croissants, harðsoðnu eggi, camerbert, mozzarella og ferskum ávöxtum. Heeeví næs. Nom. Verð reyndar svöng af því að lesa þetta hjá mér. En já, það sem eftir lifir dags þá ætla ég að
*fara í ræktina
*þvo fötin mín
*vaska upp
*læra heima
*Borða það eina sem ég á eftir í ísskápnum... s.s. Brokkolí, tómat og rauða papriku.
og svo taka því rólega uppi í sófa og horfa á Fraiser. Get ekki beðið eftir morgundeginum.
Heyruuumst


7 Ummæli:
Hlakka svo til að koma til ykkar á morgun !
Fyrsta skiptið sem ég kíki á bloggið þitt og það er um mig.... eða svona næstum... það var allaveganna nafn mitt nefnt á nafn.. ég vona að þú hafir verið að meina mig :)
Já, enginn annar Óskar er að koma á morgun! :D Ég hlakka svo til að fá ykkur.
mmm brokkolí, tómatur OG rauð paprika, where can you go wrong? Mælirðu með Frasier?
ég mæli hiklaust með FRASIER!:D
Hildur er svo retró að borða gamalt grænmeti og horfa á Fraiser! ;)
Annars mæli ég með Bleach eða One Piece, meget awesome þættir. Við taka anime þaramon þegar þú kemur heim? :D Vei? :D
jámm, hérna, uhm, héddna... ég þúst og eitthvað ... ókey?
Hildur, þú ert sjaldan jafn heit og á myndinni í þessari færslu. Ég skemmdi lyklaborðið með slefi....
*mjá*
Skrifa ummæli
<< Heim