þriðjudagur, mars 31, 2009

Æðislega frábær endir á góðum mánuði!

Valborg og Valey komu, sáu og sigruðu hjarta mitt hérna seinustu helgi. Aldrei var dauður punktur!!

-Stelpurnar komu á föstudagskveldi, múraðar af litlum skotflöskum og lítilli Fresita flösku. Drykkum þeirra skál og tjilluðum það sem eftir lifði kvölds.
-Daginn eftir, á afmæli Valborgar,fórum við þrjár að versla og fannst loks afmælisgjöf handa Valborgu :D einnig voru keyptir tveir hálfs kílóa ullarhnyklar til að byrja prjóna úr! Við Valey vorum drulluþreyttar eftir labbið en Valborg var með e-ð afmælisadrenalín í fótunum sínum og gat haldið ótrauð áfram.
-Pöntuðum borð fyrir afmæliskvöldverð á leiðinni heim
-Eftir verslunarferð fóru stelpurnar að lita á sér hárið og ég fór í ræktina að hlaupa. Þær drukku víst heila hvítvínsflösku á meðan, það hafði engin áhrif á hárniðurstöðurnar!
-Við fjögur fórum út að borða á Mythos, gríska veitingastaðnum. Átum okkur flest öll pakksödd.
-Eftir mat var haldið heim, drukkið, mátað nýju fötin, Valborg setti á sig makeup og svo var haldið út á lífið!
-Á Matrix club var dansað og var slagorð kvöldsins: "IT'S MY BIRFDAY!"
Valborg fékk margan frían drykkinn þetta kvöldið. M.a. var dansað upp á borðum (ekki við, heldur eldheitar fáklæddar dansstúlkur), dansað í búrum, dansað við súlu og nokkurn veginn hvar sem er inni á klúbbnum.
-Vegna ölvunar, þreytu og bólgins fótar þá tókum við Taxa heim.

-Sunnudagur fór í þynnku, bólgin fót og veikindi. Ekkert af þessu átti þó við mig þar sem að ég var spræk. Við Valey fórum í leiðangur að finna Stól Satans. Sem við fundum svo ekki en við tókum Pergamon safnið á túrbó hraða, allt pleisið á 20 mínútum.
-Um kvöldið þá buðu "Svíarnir", kanadagæinn Steven og rúmenskapæjan Malina okkur í matarboð ásamt fleirum kanadamönnum, rúmenum og já jafnvel einum Kasakstana. Multi kulti kvöld.
-Fengum bakað kál með kjöti og grjónum inni í, gúlash súpu og kartöflu kjöt e-ð. Voða rúmenskt en ýkt gott.
-Þegar heim var komið fórum við Valborg að horfa á "A Tale of Two Sisters" suður-kóreska spennu-sálfræði-hrollvekju. Horfðum á hana með engu hljóði á pörtum, því það gerði upplifunina bærilegri. Prjónuðum líka. Ýkt kósí.
-Á mánudeginum var Valey orðin fárveik og þurfti að húka heima allan daginn.
-Við Valborg fórum hins vegar í smá mission en enduðum á að kaupa bara Bikiní á hana... Við borðuðum á Pizza Hut á Kudamm og ákváðum svo að kaupa Döner Kebab handa henni veiku Valeyju.
-Gladdi það hana mikið :D En stuttu síðar þurftu stúlkurnar að fara út á flugvöll.
-Óli lánaði Valeyju trefilinn sem ég prjónaði á hann en því miður tók hún hann óvart með til Íslands.

Ótrúlega var gaman að fá þær í heimsókn!! Hlakka til að fá þær aftur hingað!








2 Ummæli:

Þann 9:17 f.h. , Anonymous Bryndís Snæfríður sagði...

oh gaman að sjá myndir af þér! :) og heyra hversu gaman það var! mig langar svo að koma!!!!! :(
elska þig mýsla (L)

 
Þann 5:57 e.h. , Anonymous Valboooog sagði...

Best Birfday evah líka :)

Takk kærlega fyrir að bjóða okkur velkomnar. Ég býst fastlega við að þetta verði mánaðarlegur viðburður héðan af :D

 

Skrifa ummæli

<< Heim