Mikið fjör mikið gaman mikið að gera
Jæja, mér hafa borist athugasemdir um að ég ætti að blogga. Svo ég geri það auðvitað :)Það er meira en nóg í gangi hjá mér þessa dagana, búið að vera slatti að gera fyrir þessa viku þar sem þetta er seinasta vikan mín í báðum kúrsunum. Svo milli þess sem að ég er búin að vera læra er ég búin að horfa á Eureka og spila Tetris villt og galið. Tók mig til í dag eftir skóla og tók vel til hérna heima. Ryksugaði allt, þreif gluggana, þreif allar flísarnar inni á baði, þreif klósettið og vaskinn líka. Þurrkaði af, braut saman þvott og gekk frá honum. Toppaði daginn með því að fara í ræktina og hlaupa 5 km. Geggjað dugleg. Enginn skóli á morgun, það þýðir að ég get drifið mig að gera hluti sem þarf að gera. En...
Hápunktur febrúar hingað til er heimsókn Einar Þórs og bróður hans Andra :D Við áttum góðar stundir saman, meðal annars þá fórum við út að borða á veitingastað sem er almyrkur og allir þjónarnir eru blindir. Fyrst velur maður matseðil áður en maður fer inn á sjálfan veitingastaðinn. Þrennt er um að velja, nautakjöt, fuglakjöt eða grænmeti, ekkert nánar út í það farið. Blindur þjónn kemur og leiðir mann inn í myrkan veitingastaðinn. Svo sátum við saman í myrkrinu, þreifandi okkur áfram eftir glösunum, diskunum, hnífapörunum og að sjálfsögðu matnum, reynandi að giska hvað maður er að borða í rauninni. Alveg ótrúleg upplifun, verandi staurblindur, alveg eins og þjónarnir...
En ekki var verra að Einar kom með 21 poka af örbylgjupoppi sem kláruðust á innan við viku. Já, ég er sjúk... fékk samt smá hjálp frá Óla og nokkrum öðrum aðilum en ég er samt sjúk í popp og það er alveg rugl ruglað.
Svo tók ég e-ð ömurlegt veikindatímabil í lok janúar til miðs febrúars og er ég að ná mér, held ég. Svo ég tók aðeins og langa pásu frá ræktinni og bætti strax á mig þessu 2-3 kg sem ég var búin að hlaupa af mér. Args...
Það sem er á lista yfir að gera í þessari viku:
*Fara í Bauhaus og panta flísar
*Fara upp í FU og tala við háskólaupplýsingadæmið um hvað ég ætti að gera varðandi þýskuprófið TestDaF eða DSH.
*Fara meira í ræktina og vera fitty bom bom en ekki fatty bom bom
Mér dettur ekkert fleira í hug annað en að fara í skólann og læra.
Ég er búin að skrá mig í áframhaldandi þýskunámskeið og það námskeið byrjar 2. mars, er mjög stolt af mér hvað það varðar, ég tók próf hjá kennaranum mínum og hún var mjög ánægð með útkomuna og gat viðurkennt að ég get haldið áfram, þrátt fyrir að hafa lært þýsku í svona stuttan tíma. KABLAMM! :D
Jæja, Valborg, sátt við mig? :D :*
Kossar og knús frá snævi þöktu Þýskalandi


1 Ummæli:
sem sagt þú ert að gefa í skyn að þetta sé fyrir mig ? Að ég hafi verið að biðja þig um færslu?
Annars sakna ég þín geggjað mikið og ég bara og eitthvað vil hafa þig hjá mér.
Skrifa ummæli
<< Heim