sunnudagur, mars 01, 2009

All by myself


Dýrið er aleitt. Óli fór á föstudaginn var til Íslands, ég sat ekki ein og grét, ég fór að heimsækja Birnu, Au-Pair sem þekkir hana Silju(önnur Au-Pair sem ég hitti í lestinni fyrir tilviljun), þar fékk ég osta og hvítvín. Fórum í drykkjuleik þar sem að reglan var að taka dverginn af glasinu, drekka, setja hann svo aftur á glasið. Furðulega erfitt að muna :P Sem urðum við allar svo þreyttar að við gistum saman inni í stofunni. Kósýkvöld. Svo í gær þá bauð Susi mér í þríréttaðan kvöldverð: girnileg tómatsúpa, spaghetti með rjóma og spínati, svo stracciatella ís með súkkulaðikökumylsnum og ávöxtum. Freeekar ljúft. Torti var þarna líka og við átum okkur pakksödd, drukkum og svo gistum við Susi saman. Og núna í morgun fengum við okkur ljúffengan brunch! Lítil heit brötchen með salami, skinku, smjöri, marmeladi og svo ferskir ávextir, hrærð egg með skinkubitum og kryddi, te og appelsínusafi!!! Ég bara hef ekki borðað svona góðan morgunmat í lengri tíma! Borða vanalega varla morgunmat. Æðislegt alveg. Fékk að taka með mér afganga! ví. En já, varðandi að vera ein hérna. So far hef ég ekki sofið ein í rúminu okkar Óla, en það verður örugglega pínu einmanalegt. Öfunda hann líka að vera á Íslandi! Ég vil vera á Íslandi líka. Hitta vinina, fjölskylduna... sniff! En já, ég er í miðju Fraiser maraþoni þessa dagana, ég er að skemmta mér konunglega! :D
Knús frá Fiskalandi

2 Ummæli:

Þann 11:14 f.h. , Blogger Halldóra Eldjárn sagði...

Ég skal gefa þér seríós þegar þú kemur heim. Það er sko dýrindis morgunmatur!
Annars þá er ég að rústa í Tekken, þannig að þú verður að taka story battle með mér þegar þú kemur heim. Jinpachi endakall hefur unnið sér sérstakan viðbjóðshaturssess í hjarta mínu...

 
Þann 4:30 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

Ekki málið! Úúúú Cheerios, sakna þess svoooo. Vissirðu að Óli er á Íslandi?
En allavegana, Jinpachi er bara viðbjóðslega leiðinlegur gaur. Og já, skil þig mjög vel hvað það varðar!!! En ég tek svo gjarnan með þér Story Battle þegar ég kem :)

 

Skrifa ummæli

<< Heim