Föstudagsblogg!

Hér kemur fyrsta blogg ágúst mánaðar... Jeij!
Já, af tónleikaferðinni miklu er það að segja að ekki mikið varð úr henni. Við fórum öll að Skógum og gistum þar en svo héldu Erlingur og Bjarni einir af stað til Borgarfjarðar eystra. Því miður þá ég lagði bara ekki upp í svona mikla reisu. Alveg hinum megin á landinu! Sheeeze...
En í dag gerðist góður hlutur, síðasti vinnudagurinn minn, nú get ég loksins slappað af og farið að hlakka til og undirbúa mig fyrir skólann. Ég hlakka svo til að byrja aftur.
Og í vinnunni náði ég að hefna mín á einum flokkstjóranum síðan að hann sprautaði á mig fyrir viku, ég tók kúst á bensínstöðinni og sprautaði yfir hann, þá tók hann til þess að ná í kúst og ætla að gera slíkt hið sama við mig, ég barðist hetjulega á móti að halda kústinum niðri og frá andlitinu mínu. Ég hékk á einum tímapunkti á kústinum þegar að hann lyfti mér og kústinum upp... Hann náði þó að sprauta á mig smá og inn í ermina sína líka. Ég held að við höfum skilið temmilega kvitt, þó ég skuldi honum smá spúl.
Ég hef ekki verið sérlega sparsöm síðan að ég fékk útborgað og hef ég fjárfest í ýmsum klæðum og skemmtilegum hlutum. En ég á ennþá eftir slatta sem ætti ekki að eyðast alveg í bráð. Ég get verið svoddan eyðslukló.
Ég er byrjuð að æfa sund!(Enn einu sinni hugsa pottþétt sumir... Ég held að ég meiki þetta núna, því að ég er að byrja á byrjun sundtímabilsins en ekki inn á því miðju eins og áður.)
Fyrsta æfingin var í gær og voru syntir tæplega 3 km og í dag verður farið út að hlaupa og svo synt eitthvað. :-D Mér finnst þetta alveg ofboðslega skemmtilegt.
Ætla að fara borða smávegis núna og svo skunda á sundæfingu. Eins og í gamla daga...


3 Ummæli:
Æðisgengið!
Þúrt voða jákvæð! Tjahh jú ég hlakka pínu til að kíkjí skólann en verð stundum alveg til átta í honum þannig að tjahh...ég veit ekki. Og svo er ekkert gaman að hlaupa lengi úti. En þér finnst það, krúttlegt, nú er ég farinn niðrí laugardalslaug hehe =]
Bíddu er þetta ekki fyrsta og seinasta blogg þessa mánaðar ;) alltof upptekinn að lifa lífinu að þú segir okkur ekkert frá því...
Skrifa ummæli
<< Heim