OK OK OK OK! i SUrreNdeR..
Afsakið, HLÉ. Nei, í alvöru, ég biðst afsökunar. Ég bara er ekki búin að finna til blogglöngunar í lengri tíma, svo að ég virðist vera komin aftur í sama farið, að blogga sjaldan. Reyni hér með að bæta úr því:Nýjasta nýtt er að ég er byrjuð að vinna. Ég er að slá gras með vélorfi, raka því svo saman, setja það í poka, sópa, losa poka í gám og sólbrennast eða vera í pollagalla. Það er sko ekki gaman að slá gras í rigningu, hvað þá að reyna sópa því saman... Það er sko erfitt, leiðinlegt og nánast ógeranlegt... En ég reyni þó. Að gleyma bera á sig sólarvörn, eru slæm mistök. Mæli með því að allir beri á sig sólarvörn. Sérstaklega þegar það er sól úti. Heyrst hefur að ég sé Macho-Girl, kvenskörungur og ákveðinn drengur kallaði mig lítinn trukk, því að ég er eiginlega eina stelpan sem slær gras. Ég er sko enginn trukkur, ekki einu sinni mini van! En samt held ég að það sé allt gott og blessað, nema macho-girl hljómar trukkalegt sem mér líkar ekki.
Svo er ég í ágætis heilsuátaki og gengur það vel, því að ég borða frekar hollan mat og svo vinn ég erfiðisvinnu sem setur strik sitt í reikninginn. Harðsperrur í höndum, fótum og baki... öxlum... You name it, it's probably hurting!:-P
Svo fer ég í sund stöku sinnum, þegar ég hef orkuna í það.
Stóra systir mín fer áreiðanlega að eiga bráðlega og hlakka ég svolítið til að verða frænka... eða frændi. Nei ,djók! Ég get bara verið frænka... nema ég fari í kynskiptiaðgerð. Mig langar það nú reyndar ekkert... Ég held ég þegi bara:-D
Svo var tebó og 17. júní og það var dottið smá í það. TÓPAS! S I E G H EI L!
Á ég að blogga oftar?


7 Ummæli:
mehr blog!
gehein
ég kann ekki þýsku maður... en þúst, meira blogg á íslensku :P
Menn skulu blogga af hjartans list hvenær sem færi gefst.
hey annar macho kvenmaður sem slær gras með orfi...
ég er voða dugleg við að slá hringtorg í pollagalla í sumar...
Ef þú ert svona hörð á því að sletta á þýsku gætirðu ekki líka bætt inn í smá español fyrir hina eðlilegu? hmm?
Muchas gracias mi bella
Litli trukkurinn sem gat. Endilega bloggaðu meira:)
Skrifa ummæli
<< Heim