miðvikudagur, maí 31, 2006

HAI!

Lo.
Ok, ég varð ekki jafnfrjáls eins og ég hafði vonað... Vegna þess að ég féll á lesinni stærðfræði. Átti ekki von á því, átti frekar von á að falla í ólesinni heldur en lesinni. Það var léttir að ég féll ekki í báðum. :o) Svo að síðustu 2 daga er ég búin að vera læra sannanir utanbókar til að ná endurtökuprófinu sem er eftir 2 daga.
En annað og skemmtilegra er að segja frá að tjaldferðin var rosalega svöl. Í þeirri merkingu að það snjóaði og fór niður fyrir frostmark um kvöldið. En ég skemmti mér nokkuð vel fyrir utan að verða reynslunni ríkari hvernig það er að vera víbrador.

Gamla ástkæra sunddeildin mín er að fara til Kanarí á morgun og vona ég að þau skemmti sér konunglega og verði dugleg að æfa. En ekki ofdugleg. Eða hvað...

Keppnisíþróttir eru stórhættulegar. Þær eru ekki hollar, þær fokka upp líkamshlutum, svo sem öxlum, hnjám og baki. Þess vegna er ég að synda sjálf bara 2.5-3.5 km 4-5x í viku. Keppi við sjálfa mig mest... því að enginn sem ég hef séð í vesturbæjarlaug upp á síðkastið hefur roð í við mig!:-P
En í kjölfarið hef ég fengið fjörfisk í læri og bak.... Það er mjög mjög undarlegt.
Kjánalegt.

En segið mér... Hver er til í að fara til Kanaríeyja, nánar tiltekið
þangað...

4 Ummæli:

Þann 3:26 e.h. , Blogger Þórir sagði...

Netið mitt er leiðinlegt...það er svo hægt í dag...svo leiðinlegt, það á ekki að vera þannig!

 
Þann 6:25 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Þetta lítur út fyrir að vera skítapleis. Rónar og dópistar allstaðar, myndin er haft í þeirri upplausn að mengun sést ekki.
Svo að þú færð ekki bara húðkrabbamein út af of sterkri sól og skrot á ósoni, þá er lungakrabbinn skammt undan.

Hvað er að ég að segja? Auðvitað langar mig þangað! Shit hvað mig langar í krabbamein!

 
Þann 10:13 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hugdetta! Næsta páskaferð þarna, það getur ekki klikkað ;)Veit þú massar þetta próf.

 
Þann 4:54 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

sko, ég bara sendi þér SOS í dag, því ég var að mygla go hjóla útí Björnsbakarí en þú bara svaraðir ekki og ég sest niður og grenja úr mér augun og hitti litlu systur þína og hún segir að þú sért í sumarbústaðaferð með Þóri þannig ég bara ok og hjóla í 10-11 og drekki einmanaleikanum í sælgæti á 50 prósenta afslætti.

*ég held að þetta sé lengsta setning sem ég búið til án þess að nota greinarmerki, ég sem hata greinamerkjalausar setningar*

og já, mig langar mjög mikið með þér til kanarí... þú ert að bjóða mér, er það ekki? ;)

 

Skrifa ummæli

<< Heim