Þrjú niður og níu til fara

Bæði dönskuprófin nú full afgreidd. Gekk vel. Svo á morgun er stúdentspróf í tölvufræði, það er fag sem ég hef ekki mikinn velhug á. En ég ætla hér með að gera mitt besta og reyna lesa allt fyrir prófið sem mikilvægt er að kunna. Svona gagnlega hluti um Word og Excel, en ekki leiðinda Boolean Algebru eða rökrásir.... FLIP-FLOP rásin! Vúhú! Eða NOR-NAND hlið? Heck yeah!
Já nei.
Við Þórir fórum saman út í góða veðrið í gærdag. Ég línuskautaði og hann hjólaði, þessi ferð varð að 4 klukkustunda túr um miðbæinn. Við hittum hana Dóru á Ingólfstorgi og lá leiðin svo í Tiger. Það var geigvænlega gaman! Línuskautar inni í Tiger er bara stuð, fólk grunaði mig samt líklega um það að vera þroskaheft þar sem ég línuskautaði um mrð risastór býflugna sólgleraugu og rússneskt ömmu sjal. Grunur minn var staðfestur þegar að frú á fimmtugsaldri gaf mér "the sympathy look". Hún er kannski bara abbó því hún kann ekki að línuskauta og/eða að maðurinn hennar heldur framhjá með öðrum manni sem er heimsmeistari í svigi.
How should I know? Hún bara gaf mér þetta augnatillit.
Nóg af fjasi, farin að stúdera tölvufræði!
Vi ses. 1337


7 Ummæli:
Auðvitað farið í Tiger! enda eru þið snauð og nísk á allan máta,
eða eigum við að rifja upp afmælið mitt :(, eina sem ég fékk þetta kvöldið voru tárin sem ég grét oní mig þegar ég fór að sofa!
fáið ykkur svo vinnu! HIPPAR
B-I-T-U-R
er hann Willie Beamen....
Skóli er vinna, sem þú færð misvel borgað fyrir, það fer allt eftir því hversu mikið þú ert reiðubúinn að leggja á þig til að fá ríkulega launað.
Villi, þessir fordómar þínir eru ekki að meika það. Ég gaf þér Tiger gjöf upp á grínið, ég gef öllum Tiger gjafir!
hvað er 1337?
Ég er 1337.
Ég á teiknimyndasögur fyrir meira en 200.000 kall. Ég kann heilar D&D reglubækur utanaf.
Ég er inná mörgum, leyndnum, mjög svo skrítnum forum communitys sem aðeins mjög svo skrítnir nördar og/eða fólk kemst inná.
Ég á mjög mjög mikið af tölvuleikjatónlist úr gömlu gömlu nintendo leikjunum sem ég fíla í botn.
Ég á yfir 400 leiki í Emulator, bæði snes og nes. Ég tala 1337 5|O34|< reiprennandi o.s.fr.
Meira vil ég ekki segja því þá verð ég brennimerkur sem virkilegt nörd.
|O|-|33|2 //\//\Y |_337 5|<1|_|_2!!!
sjitt
Shiiiiiiiiiiiiii...
Skrifa ummæli
<< Heim