Nei sko! BLOGG!
JÁ, GÓÐIR LESENDUR, ÞIÐ ERUÐ AÐ LESA NÝTT BLOGG FRÁ MÉR! OOOEEEOOOO WEEE!Það sem hefur gerst og fer að gerast:
*Eitt það stærsta sem ég get minnst á er heldur smátt í rauninni, ég eignaðist lítinn frænda í mánuðinum, og þýðir það að ég er orðin móðursystir( systir móðurinnar, fyrir þá sem ekki fatta strax, og já, það eru sumir;o) ) Hann er pínkupons en hann fer stækkandi, sætasti frændi minn. :o)
*Spilaði D og D, það var mjög gaman. En það varði heldur stutt því að annar meðspilari minn þurfti að fara að heimsækja ömmu sína.
*Síðasta helgi einkenndist af teitum, eitt hjá tvíburunum Bjarna og Ingibjörgu og annað hjá honum Stebba gamla. Taka má fram að ég var blá edrú í báðum teitunum. Eftir afmælis teitið hjá Stebba héldum við Bjössi, Valborg og Þórir niður í bæ á heldur klístraðan stað sem heitir Belly's. Var dælt í hitt fólkið(sem sagt föruneyti mitt, fyrir utan mig) fríu áfengi til klukkan fjögur og svo var fólk rekið út. Yfir helgina uppskar ég strengi í hálsi eftir að hafa sýnt góðkunna takta við What is love með Haddaway. Það var stuð. Ég bjó líka til drykk með rafknúinni safapressu, að búa til drykk í rafknúinni safapressu er heldur subbuleg iðja. En þetta er víst það nýjasta nýja hjá fræga fólkinu sem og öðrum. Held að ég haldi mig bara við smoothie-ana mína.
*Svo er ég byrjuð að hreyfa mig aftur. Fer núna út að hlaupa þegar hressleiki leyfir.
Hljóp áðan gamla Hagaskólaprófhringinn, það var gaman.
*Eins og margir hafa tekið eftir þá hefur þetta sumar ekki verið sérlega hlýtt og sólríkt, meira rigningarsamt og fúlt. En það hafa komið góðir sólardagar, ég vona bara að þeir verði fleiri. Því að það er ekkert sérlega gaman að slá, raka, sópa og setja í poka í mígandi rigningu. Spliff.
*Um helgina verður tekin stefnan á Borgarfjörð Eystri, sem er eiginlega nákvælega hinum megin á landinu. Tilgangurinn með þessu er að fara að sjá the totally awesomeosaurus hljómsveitina Belle & Sebastian og hana Emiliönu Torrini. Fríður flokkur fer með og verður þetta allsvaðalegt road trip. Kannski hún toppi skíðferðina!
*Núna ætla ég að segja þetta gott og fara sinna gestinum mínum.
(Awesomeosaurus[ossom:ósorus] er nýtt slangur yfir eitthvað geðveikt frábært)
JA WOLL!


9 Ummæli:
Magnað, alveg magnað. Þetta verður alveg tyrawesomeosaurus rex, sko.
Ég er að hlusta á Careful Where You Stand :)
http://www.radioblogclub.com/search/0/careful_where_you_stand
:D
Luv ja, Hilly Billy :*
Það er bannað að hlaupa og það er alveg bannað. drepum hlaup já!!
-Hrefna
hey yo! ég sá þig í vinnunni í dag! en þú sást mig ekki, piff!
Ég vildi að ég gæti sést í vinnunni minni:(
Heyrðu mig nú Ingunn! Ég sá þig líka í vinnunni, veifaði þér meira segja sko... Þið voruð að keyra á gangstígnum við Ægisíðu... Ekki satt?
Jú mikið rétt, við vorum á gangstígnum við Ægisíðu. Annars keyri ég mörgum sinnnum á dag framhjá þér ;P hoho
hæ
hvers manns draumur að sla i rigningu
friðurrrr
hæhæhæhæhæhæhæhhæhæhæhæh, ég er að kommenta.
Ég ætla að byrja á að heimta nýtt blogg! núna, strax í gær!
Langar þig að gera eitthvað í kvöld? hm? hm? hm? mús?
íavoll? javoll? íjavoll?
blogg?
Skrifa ummæli
<< Heim