sunnudagur, maí 07, 2006

Ristru flan


Já, afmælið í gær var mjög skemmtilegt og er það bróðurpartinum að þakka ættingjum sem voru með hin ýmsu skemmtiatriði og ræður. Fyndnust fannst mér ræða eiginmanns frænku minnar um ristru-flanir eins og hann orðaði það svo skemmtilega. Gleymi því seint! Ristru-flan.
Svo er ég búin að vera heldur dugleg í gær og í dag að læra hornaföll og vigra, þó svo ég sé enn þeirrar skoðunar að þetta sé mér vita gagnslaust upp á daglegt líf mitt að gera. Þarf mjög ósennilega að kunna að reikna vigra, því að þeir eru beintengdir inn á eðlisfræðireikninga, sem er eitt af þeim hlutum sem ég ætla að forðast sem heitan eldinn í framtíðinni.
Tíminn flýgur og ég þarf að halda áfram að reyna leggja þetta á minnið.

Theoretically, if you go to the past in the future, then your future lies in the past.


MIG VANTAR MEIRI TÍMA.

6 Ummæli:

Þann 11:34 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

GIEF TIEM!

 
Þann 11:37 f.h. , Blogger Ragny sagði...

hehe, ég var geðveikt lengi að fatta þetta :P Ristruflanir.... án gríns, það tók mig alveg 5 mín...

 
Þann 4:12 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Þatta var tremma skemmtilegt sko, gaman að kynnast fjölskyldunni þinni (drykkja) sem augljóslega kann að skemmta sér vel (drykkja). Ég hlakka til næsta fjölskylduboðs, ég ætti jafnvel að bjóða þér í næsta mitt. :)

 
Þann 7:17 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er algjörlega sammála með þennan tíma. En í alvöru af hverju í anskotanum er ætlast til þess að maður læri 37 reglur og snannarnir utan að og líka 26 skilgreingingar. Bara rugl!

 
Þann 5:13 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Berjumst fyrir 30 klukkutíma sólarhring! Þá ætti maður allavega að geta sofið.
Leiðinlegt að þú skyldir missa af manchestertónleikunum, fékk setlista frá Elbow, Echo and the bunnymen og Badly drawn boy. Þið munuð sjá mig næst á uppboði á ebay (æj, ekki mig sjálfa jú nó)
eða ég að missa af afmælinu, ég hefði getað hjálpað þér að hella fólkið þitt fullt! næst? :)

 
Þann 4:56 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

¡komment!

 

Skrifa ummæli

<< Heim