Hildur beiler
Já, ég verð að viðurkenna það. Ég er hætt við að reyna skipta yfir á nýmáladeild í ljósi þess að ég get ekki hugsað mér að læra latínu í allt sumar. Það myndi ganga af mér dauðri. Kannski ekki dauðri en ég yrði aðeins veikari á geði en ég er fyrir. Og er þá hér með staðfest að ég verð í 5. R næsta haust, enn sem komið er þá verð ég með Þóri í bekk, Bryndísi vinkonu minni og Möggu gömlu bekkjarsystur. Allir sem fara inn á Innu að kíkja á hvaða bekk þeir eru í mega endilega deila því með mér.Síðustu 5 daga er ég búin að vera ein heima því að foreldrarnir skelltu sér til Parísar. Þau náðu að sjá allt það helsta sem túristar verða að sjá og skoða. Bara allt heila klabbið og dáist ég mjög að því. Svo að ég fékk hann Þóri til að gista hjá mér allan tímann. :-) Svo fórum við á fimmtudegi að hitta þýska lúðrasveit og kynntumst við þremur Þjóðverjum: Johannes, Sibylle og Tobias. Þau voru öll mjög indæl og helltu Þóri fullan og gerðu tilraun með að fylla mig, en ég sagðist þurfa keyra heim svo að þau hættu eftir smá stund. Svo kunna þeir sko að skemmta sér, þeir kenndu Þóri setningu sem þýddi að núna væri tími til að skála og drekka snafs. Og sungu þeir svo alltaf drykkjusöng í kjölfarið.
Næsta kvöld fórum við til þeirra að spila fótbolta og datt ég ásamt Tobiasi og sneri mig og tognaði á liðbandi. Það var frekar vont. Og þurfti 4 manneskjur til að drösla mér á læknavaktina sem var svo lokuð og var ég keyrð á slysó í röntgen til að ganga úr skugga um að ég væri ekki brotin. Næstu tvo daga studdist ég við hælkju og hlúði að fætinum. Núna get ég stigið í hann. Svo var lokahóf og varð ég alldrukkinn og í gær var ég þynnri en allt þunnt. Guð minn almáttugur... ég er komin í áfengispásu.
Vona að allir hafi það gott og við verðum að fara dansa sólardans því að þessi leiðinda rigning er ekki að gera sig....


12 Ummæli:
Áfengispása? kannast nú við það, verður farin að drekka aftur næstu helgi.. :)
Þú hefur hvortsemer ekki það sem þarf á nýmó!!! (ló, skó, fló, mó)
-www.biturleiki.is
annars, :D!
Stebbi
Við skulum ekki gleyma hver sótti þig á slysó um miðja nótt!
5.B all the way, tík!
Nei, auðvitað ekki. Lafði Ragnheiður var sko góð að sækja mig og mitt fríða sjúkraföruneyti; Þóri og Bryndísi...
Þú veist að tík er kít aftur á bak...
Hví erum við að kítast á?
Nei, í alvöru, mig langar ekki að sjá áfengi einu sinni.... ígh.
Ich wünche mir, dass wir alle zusammen jetzt anstossen und einen Schnapps trinken!
Ég er ekki alveg viss með staðsetningu jetzt-sins þar sem ég sleppti því óftast. Kom í veg fyrir að ég myndi aulast til að segja eitthvað í áttina að "Jetzt Juden!"
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Þú ert lélegur beiler. Mjög lélegur beiler. Alveg fáránlega lélegur beiler.
Þetta með löppina á þér var bara karma greinilega.
Og hvers vegna að taka veðurfræðinga á eintal í fréttunum:
"Jæja Friðjón veðurfræðingur, hvað ætlar þú svo að gera í málinu, það er komminn júlí og við viljum fá gott veður"
-"já það er bara 12°C hiti nún"
"En það er enginn sól"
Eiga þeir að gera eitthvað í málunum?
mikið er fólk gleymið, við búum á ÍSlandi. Ekki SÓLlandi.
Förum bara öll saman til Írlands. Þar er allavega ekki janfmikill ÍS yfir öllu, heldur ÍR... hvað svo sem það er.
Gæti verið svona eins og ÍTR nema bara engar tómstundir.
Að hinu, samhryggist þér með fótinn. Að öllum hluta.
Æ, leiðinlegt með fótinn :(. Ogjá ég verð í 5.S og hún valborg líka
Jó. ég hef ekkert við bloggið að bæta þannig að við skulum öll syngja MURDER THE GOVERNMENT (sinnum 3) and then... then what Hildur then what?!?!?!?
DO IT AGAIN YEAH!!! :-D
Ég er ekki apaköttur
Ég held að þú munir vilja áfengi aftur ef þú smakkar smirnoff eplavodka. Það var uppáhaldsmorgunverður og kvöldverður og drekkutímaniðurskol í tjaldbúðum mínum á Hróarskeldu.
Inna segist ætla að setja mig í 5.Y.
Skrifa ummæli
<< Heim