Níu niður og þrjú til fara!
Bloogle! Ég sá á teljaranum mínum að það eru allnokkrir búnir að heimsækja þessa blessuðu síðu í dag svo að ég held að það sé tímabært á smá blogg! :-)Hvar skal byrja? Síðast þegar ég drattaðist til að skrifa hérna var fyrir hvorki meira né minna en 5 dögum síðan!!
Síðan þá er ég búin að taka tvö stærðfræðipróf, sem ég held og vona að ég hafi slefað yfir, einnig lærði ég í 9 klst fyrir söguprófið. Það gekk bara nokkuð vel, fór út eftir klukkustund, sem já... Segir ekki endilega hversu vel mér gekk, því að ég fer oft tiltölulega fljótt út. Og í dag voru íslensk fræði. Ég taldi saman stigin mín og kom þar út 7. Sem mér finnst persónulega vel af sér vikið.
Eftir prófið fórum við Bryndís saman í Laugardalslaug. Vorum þar í þrjá tíma að sóla okkur, synti reyndar 1 km en lagði ekki í annan því að mér var hálf illa við að skilja hana Bryndísi eftir í pottinum. Svo er ég ekki frá því að ég hafi tekið smá lit! Vúhú! Hildur über næpa er orðin að radísu! YAY! Brenndur nebbi er inni í dag? Haggi?
Svo fórum við í Kringluna að skoða og snæða. Vá, það er svo langt síðan að ég fór í Kringluna. Alltaf verið að breyta einhverju þarna. Algjör steypa. Kýs nú heldur Miðbæinn heldur en þetta völundarhús.
Efnafræði lærdómurinn hefst á morgun, þessi dagur var frídagur. I think I did deserve a break.

Niggah PLZ!


4 Ummæli:
mér finnst brenndir nebbar alveg afskaplega svalir. Og ég tala ekki um eldrauðar kinnar með massa mikið af freknum. Sólin rúlar.
lo bob!
ég klára prófin á morgun! víúvíúvíúvíúvíúvíúvíúvíúvíúvíúvíúvíúvíú..... *gleði*
ég ætti kannski að byrja að læra, stærðfræði á morgun :/
eða kannski ég horfi á speedy gonzalez..... mmmm....
Að sjálfsögðu kýstu miðbæinn frekar. Kringlan er eitt af mörgum vélabrögðum Satans. Smáralindin er hinsvegar aðeins eitt stórt hlið rakleiðis til helvítis.
Miðbærinn er hinsvegar yndislegur, sól og blíða, ísbúðir um allt. Mannfólk sem auðvelt er að hlæja af. Yndislegt.
That is oproarious!
Skrifa ummæli
<< Heim