mánudagur, ágúst 21, 2006

Bah!

Sit hérna heldur mygluð, eftir langa djamm helgi. Menningarnótt var heldur löng hjá mér. Hún byrjaði kl. 17.00 með Jeff Who? á Laugavegi 77 í fáránlegri mannþröng, hef aldrei vitað aðra eins vitleysu og planta sviði á þrönga Laugaveginum, þar sem ekki allir sjá það sem þeir vilja sjá. Landsbankinn hefði mátt velja sér betri staði til að sýna listamennina sem þeir fengu til að spila fyrir sig á þessu stórafmæli. En svo hélt þetta áfram með upphitun heima hjá Söndru sem fylgdi í kjölfarið með einu heljarinnar partý hjá Þóri mínum. Ég skemmti mér mjög vel þar. Fyrsta stórteiti sem ég hef farið í á þeim bænum. Það endaði kl. 07.00 daginn eftir. 4 tíma svefn er ekki mikið eftir svona partýstand. Rosalega gaman að hitta alla þarna og kynnast nýju fólki.

Mér finnst ennþá gaman að vera byrjuð aftur í sundinu. En ég nýt þess ekki lengur að fara út að hlaupa, því að þau hlaupa miklu lengra en ég er í formi til!:-P Vona bara að það breytist sem fyrst.

SVO ER SKÓLINN AÐ FARA BYRJA! JEIJ! ÉG HLAKKA SVO TIL! ÞAÐ VERÐUR OFBOÐSLEGA GAMAN! :-D

Svo er ég búin að bæta inn nýjum gibbonum og eru fleiri á leiðinni. :-D

3 Ummæli:

Þann 9:25 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

SKÓLI!!!!!
My working days are soon over....the days of poor student learning is hear.
(un)free at last!
B
P.S. djöfull eru þeir lengi að setja inn bekkjarlista og stundaskrá

 
Þann 1:24 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ehh já, er í skólanum núna en þið byrjið ekki fyrr en á föstudaginn og veistu ekki hlakka til skólans, strax eftir fyrsta tímann þá vill maður drepa sig. Eða er það bara vegna þess að ég er ekki með ykkur dúllunum mínum í skóla

 
Þann 11:24 e.h. , Blogger gunni sagði...

YAY! ég er Gibboni !
en Hildur, ertu snar ?
Skóli er ekkert til að hlakka til, ekki frekar en fallöxi í frönsku byltingunni.

 

Skrifa ummæli

<< Heim