mánudagur, apríl 24, 2006

I hate Mondays

Í fullri alvöru, þá byrjaði dagurinn eins og í einni af teiknimyndasögu hjá honum Gretti. Ég, ungfrú fullkomin mæting, skrópaði í fyrsta tíma vegna mánudagsmyglu, og þó, líffræðikennarinn er ekki sú manneskja sem mig langar að hitta fyrst á daginn. Ég legg fæð á þá konu/djöful. En kom of seint í næsta tíma. Þyrí, dönskukennari, var ekki sátt, hún er það aldrei. Held að hún sé líkamlega og andlega ófær um að vera sátt við bekkinn minn.
Biturleiki.
Margt hefur drifið á daga mína, ber þá helst að nefna að ég fór í tveggja klukkustunda viðtal hjá Götuleikhúsinu. Ótrúlega gaman og ég hlakka svo til að fá að vita hvort ég fái að vera með eða ekki.

Einnig spilaði ég Dungeons & Dragons í fyrsta skipti, var það alveg fáránlega gaman, miklu skemmtilegra en ég hefði haldið að það væri. Hafði þónokkrar ranghugmyndir og fordóma um þennan leik einu sinni. Heimur leiksins hefur upp á svo margt að bjóða og gaman að svala hluta ævintýraþarfar minnar í gegnum karakterinn minn. :-P Yes, I am officially a nerd now! YAY!

Svo styttist alltaf meira og meira í dauðadóminn. En ég er búin að gera hann bærilegri með því að plana að skipta yfir á nýmáladeild I þegar í 5. bekk er komið.
Það þýðir að ég þarf að læra latínu í sumarfríinu. ÖLL LATÍNU GÚRU VEL ÞEGIN TIL AÐ KENNA MÉR, þið fáið borgað fyrir það sko, ekkert pro bono, nema þið krefjist þess að þetta sé sjálfboðavinna... hehehe :o)

Segi ykkur meira frá þessu seinna, ætla að halda áfram að læra spænsku samtölin fyrir munnlega prófið á morgun.

Bless.

Og eitt enn... ALLIR SEM ERU SVO YNDISLEGIR AÐ KOMA INN Á SÍÐUNA MEGA SKRIFA "HÆ!" Í KOMMENT Á ÞESSARI FÆRSLU!

Mér finnst nefnilega ótrúlega gaman þegar fólk kommentar, það fær mig til að vilja blogga.
Er það ekki það sem þið viljið? Að ég bloggi? :-)

7 Ummæli:

Þann 9:17 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ekkert hæ, þú færð sko HALLÓ!
blogga blogga blogga!!!

 
Þann 9:36 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Dungeon Masterinn þinn segir: Komdu sæl og blessuð.
Ekkert "hæ" kjaftæði á þessum slóðum;)

 
Þann 10:02 e.h. , Blogger Helgibelgi sagði...

hæhæ:)

 
Þann 12:24 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég ætla AÐ SJÁLFSÖGÐU að hjálpa þér með latínuna í sumar. Og já!, ég krefst þess að þú reynir ekkert að borga mér! Ég, frú Bauer, er ekki Latínuhóra! Ég læt ekki kaupa mig til latínulesturs! Linguam latinam discimus!(rétt?)

Kennslustund 1. Amo - amas - amat - amamus - amatis - amant!

Ó já!, hvílíkt gleðisumar er framundan! VEI mér og mínum árkvillum því ek hefi aungvan sært! Ó, Ísland hvar er þinn þokki, þínir törar og þín ásýnd! Er hún okkur töpuð. Erum vér villt í hverfulleika hversdagsins, dregin af tálsýnum nútímans, aðeins til að vera slegin niður af draumsýn um betri heim. Föðmuð erum við í heljargreipum tímans og við okkur brosir einungis auðnin! Já, auðnin köld og óforskammanleg! Hvers eigum við að gjalda, við erum jú börn foreldra okkar. Er það virkirlega synd í augum nútímaskepnunar sem við köllum manninn! Spyrja mætti í draumum einfarans: hvað er veruleikinn?

 
Þann 3:09 e.h. , Blogger Ragny sagði...

2.kennslustund: rosa-rosa-rosam-rosae-rosae-rosa.

Ég, hins vegar, ER latínuhóra. Þú skuldar 550kjell.

jöh

 
Þann 7:16 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

HÆHÆ
þú blogga, ég kommenta :)

 
Þann 11:22 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

 

Skrifa ummæli

<< Heim