Næstum mánuður á milli blogga!!!
Damn hvað ég er slöpp!En það sem hefur helst drifið á mína daga:
Fór á úrslit MorfÍs í Háskólabíó að sjá Menntaskólann í Reykjavík keppa við mh. Og við unnum, glæstan og sanngjarnan sigur, því að við erum með ekkert smávegis gott ræðulið. Jón Eðvald fór hamförum, Saga líka og Gunni var bara..... hann Gunni.
Þetta var æðisleg keppni, MH-ingar stóðu sig ágætlega, en klapplið MR og allir MR-ingar yfirgnæfðu klapplið MH-inga allan tímann með fagnaðarlátum. Vá, þetta var yndislegt!
Svona er lífið daglega hjá mér:
Vakna, snooze-a, vakna, hjúfra mig niður og faðma sængina, pína mig til að teygja mig eftir símanum, dröslast á fætur, fara á klóið, klæða mig, finna til bækur, grípa eitthvað ætt, hlaupa út í strætóskýli, ná strætó, sitja í strætó og mygla, fara út úr strætó og upp brekku, fara inn í stofu, vafra um þangað til tíminn byrjar, hlusta á kennarann, hlusta á bekkjarfélaga, segja eitthvað, læra eitthvað, borða, spjalla, lesa, hlusta, fara í hlé, láta mér leiðast, fara heim með strætó, borða, kveikja á tölvunni, spila kapal, hanga á MSN, hitta vinkonu eða vin, fara í bíó/sund/leigja spólu/rúnta, fara svo heim, tannbursta mig, hátta mig, sofna, dreyma.....
Og svo byrjar þetta upp á nýtt. Svona hafa seinustu þrjár vikur verið, með einstaka útúrdúrum.
C'est la vie... flifluflank.
Svo er Grímuball á morgun, ég ætla að vera rosa fín í náttkjól, náttslopp af ömmu minni frá árinu 1950.
Það verður gah-ama-han.


3 Ummæli:
Enda kominn tími á blog.. :D
-Geheimslchassenungebrachstlos!
Dagurinn minn er ekki ýkja merkilegri, eiginlega bara ómerkilegri. Getur fengið hann ef þú tekur einhverja hluti úr þarna hjá þér eins og hlust á kennarann og þannig. Nei, djók, ég er ekki alger tossi.
En, amm, frábært að þú bloggir loksins, kíp öpp ðe gúdd vörk
hey, vó ég er að senda inn athugasemd... fjúff...
núna ert þú að skemmta þér á grímuballinu... og ég sit hérna, fátæk og læt mér leiðast í tölvunni, byrjaði meira að segja aftur að blogga... svei...
hey? hvað varð um Princess Zelda?
Skrifa ummæli
<< Heim