fimmtudagur, apríl 20, 2006

Sumardagurinn fyrsti!


Hversu yndislegt er það að sumarið er að ganga í garð með blóm og gleði?
ÓGÓ MÓGÓ MIKÓ! ehm, eða... Endalaust alveg!
En lífið er hindranahlaup og sumarið kemur ekki almennilega fyrr en 12 hindranir eru kláraðar á fullnægjandi hátt.
Jebb, þið lásuð rétt, 12! Vibbalega mikið af hindrunum, en ég skal sko "hoppa" yfir þær allar með stæl. En kannski eru ein til tvær sem ég skríð yfir með erfiðismunum, þannig er víst lífið. Það er ekkert allt auðvelt, það er ekkert alltaf allt gaman og það er nokkuð sem maður þarf einfaldlega að sætta sig við.
Life is what you make of it, aye? ;-)

Og lítill vonarneisti kviknaði í hjarta mínu í gær þegar ég fékk símhringingu frá Götuleikhúsi Hins Hússins! Þau vilja mig í viðtal! Verður sumarið mitt kannski ein B-O-B-A? :-P Tremma púl en ógeðslega kúl? Krefjandi en seðjandi?
Vá, hvað ég vona innilega að ég sé eitthvað sem þau eru að leita að í hópinn sinn.
En ef ekki, þá ætla ég bara að taka því með stóískri ró og skæla svo á bakvið runna. Nei grín, en samt, hmmmmm....

Helstu viðburðir dagsins í dag verða:

-ÞÓRIR KEMUR HEIM! :-D með Maltesers tunnu! (Já, ég verð feit og falleg! Haha:p)
-SUMARIÐ KEMUR!
-D&D session, mitt fyrsta á lífsleiðinni! Hahahahha! Töffness...
-Stærðfræðilærdómur fyrir prófið á morgun, ígh...
-Svo er þessi viðburður opin og allar uppástungur eru vel þegnar
-Já og svo ætlar hluti af brettaferðagenginu á bretti í dag uppi í Bláfjöllum, en sökum gríðarlega anna þá sé ég mér ekki fært að komast..:-(

Sem er hrikalegur bömmer. Því að mér finnst hrottalega gaman á bretti....

GLEÐILEGT SUMAR OG FARSÆL KOMANDI PRÓF!

3 Ummæli:

Þann 12:03 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Gleðilegt sumar :)

 
Þann 12:03 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleðilegt sumar! Ég kvíði líka prófunum:(

 
Þann 1:23 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

Þakka ykkur. :-D
Og Erlingur... próf eru dauði. :-/

 

Skrifa ummæli

<< Heim